James Milner, leikjahæsti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar, hefur lagt skóna á hilluna.
Milner, sem er fertugur, hóf ferilinn með Leeds fyrir rétt tæpum aldarfjórðungi, 2002. Hann lék síðast með Brighton en hann tilkynnti um ákvörðun sína á samfélagsmiðlum fyrr í morgun.
Milner, sem er fertugur, hóf ferilinn með Leeds fyrir rétt tæpum aldarfjórðungi, 2002. Hann lék síðast með Brighton en hann tilkynnti um ákvörðun sína á samfélagsmiðlum fyrr í morgun.
Í febrúar sló Milner met Gareth Barry og varð hann leikjahæsti leikmaður í sögu ensku úrvalsdeildarinnar. Hann hefur nú spilað 658 úrvalsdeildarleiki.
Alls spilaði Milner með sex liðum í efstu deild og vann hann deildina í þrígang, tvisvar með Manchester City og einu sinni með Liverpool. Þá á hann 61 landsleik að baki fyrir England.

