Enska úrvalsdeildarfélagið Liverpool hefur sent frá sér tilkynningu þar sem greint er frá því að Arne Slot hafi verið látinn taka poka sinn.
Fabrizio Romano sagði frá því fyrir nokkrum mínútum að Liverpool hafi tekið ákvörðun um að reka Slot eftir að hafa farið yfir frammistöðu hans á tímabilinu.
Liverpool hefur nú staðfest fregnirnar og kemur þar fram að það hafi þegar hafið leit að arftaka hans.
Slot tók við af Jürgen Klopp sumarið 2024 og gerði liðið að Englandsmeisturum ári síðar.
Félagið eyddi gríðarlega háum fjárhæðum í að styrkja leikmannahópinn síðasta sumar, en það skilaði ekki tilsettum árangri.
Liverpool hafnaði í 5. sæti ensku úrvalsdeildarinnar og rétt náði að bóka farseðilinn í Meistaradeild Evrópu, en fór titlalaust í gegnum tímabilið.
Spænski stjórinn Andoni Iraola er sagður lang líklegastur til að taka við.
Meira á leiðinni...
Liverpool FC can confirm Arne Slot is to depart his role as head coach with immediate effect and that the process to appoint a successor is under way.
— Liverpool FC (@LFC) May 30, 2026
He leaves with a Premier League title to his name and our deepest gratitude and appreciation.



