Landsliðskonan Telma Ívarsdóttir er farin frá Inter og á leið aftur til Rangers í Skotlandi. Inter greinir frá þessu á Instagram.
Telma kom til Inter á láni frá Rangers í byrjun árs og samningurinn gilti út tímabilið.
Inter var með kauprétt á Telmu en ákvað að nýta hann ekki og staðfesti ítalska félagið brotthvarf hennar í gær.
Telma var varamarkvörður á eftir Cecilíu Rán Rúnarsdóttur hjá Inter. Hún fékk tækifæri í síðustu umferð ítölsku deildarinnar þegar liðið tapaði 3-0 fyrir Como, en það reyndist hennar eini leikur með félaginu.
Hún snýr aftur til Rangers, sem hafnaði í öðru sæti skosku úrvalsdeildarinnar á nýafstöðnu tímabili.
Telma, sem fagnaði 27 ára afmæli sínu í síðasta mánuði, var áður á mála hjá Breiðabliki.
Á síðasta ári lék hún níu leiki með Blikum þegar liðið varð Íslands- og bikarmeistari.


