ÍR tilkynnti í gær að Róbert Kolbeins Þórarinsson væri búinn að skrifa undir tveggja ára samning við félagið.
Róbert er varnarmaður fæddur árið 2004. Hann spilaði síðast í háskólanum Eckerd College í Bandaríkjunum þaðan sem hann er nýútskrifaður.
Róbert er varnarmaður fæddur árið 2004. Hann spilaði síðast í háskólanum Eckerd College í Bandaríkjunum þaðan sem hann er nýútskrifaður.
Hann er uppalinn Stjörnumaður en hefur spilað síðustu þrjú tímabil með KFG í 2. deild.
ÍR er í 8. sæti Lengjudeildarinnar með sjö stig eftir sex umferðir.


