Barca hefur áhuga á leikmanni Arsenal - Dias hugsar sér til hreyfings - Scott orðaður við Man Utd og Chelsea -
   fös 29. maí 2026 20:12
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Anthony Gordon í Barcelona (Staðfest)
Gordon var kynntur til leiks hjá Börsungum í kvöld.
Gordon var kynntur til leiks hjá Börsungum í kvöld.
Mynd: Barcelona
Enski landsliðsmaðurinn Anthony Gordon er genginn í raðir Barcelona frá Newcastle.

Barcelona náði samkomulagi við Newcastle um kaupverð upp á um 70 milljónir punda og félagið vann Bayern Munchen í baráttunni um enska sóknarmanninn.

Gordon hefur leikið með Newcastle síðustu ár en þar áður var hann á mála hjá Everton.

Það vakti athygli að Gordon talaði fullkomna spænsku þegar hann var kynntur til leiks hjá Börsungum í kvöld.

„Hvort sem þið trúið því eða ekki þá lærði ég spænsku því ég vissi það alltaf að ég myndi spila fyrir Barcelona. Það var draumurinn," sagði Gordon.

„Að vinna Meistaradeildina með Barcelona væri ótrúlegt fyrir mig."

Gordon er núna á leið á HM með Englendingum.
Slapp
banner
banner