Barca hefur áhuga á leikmanni Arsenal - Dias hugsar sér til hreyfings - Scott orðaður við Man Utd og Chelsea -
   fös 29. maí 2026 17:18
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Fannar Heimisson til Nordsjælland (Staðfest)
Fannar Heimisson.
Fannar Heimisson.
Mynd: KR
KR hefur staðfest félagaskipti hins efnilega Fannars Heimissonar til Nordsjælland í Danmörku.

Hann skrifar undir þriggja ára samning við Nordsjælland.

Fannar er 15 ára efnilegur leikmaður sem kom til KR frá Stjörnunni um áramótin. Hann hefur spilað 1 meistaraflokksleik og þrjá landsleiki með U15 landsliðinu.

„Leikmenn þurfa að hafa náð 16 ára aldri til að mega leika fyrir erlent félagslið. Fannar verður 16 ára í byrjun aprílmánaðar á næsta ári og munum við því fá að njóta krafta hans þangað til sumarglugginn opnar 2027 þegar hann flytur út," segir í tilkynningu KR.

Tipsbladet í Danmörku sagði frá félagaskiptunum fyrr í dag en samkvæmt þeim fjölmiðli höfðu nokkur stór félög í Evrópu áhuga á Fannari, þar á meðal FCK en leikmaðurinn hafi sjálfur viljað fara til Nordsjælland.

Fannar er framherji sem var búsettur á Akureyri og var í Þór þar til í fyrra. Þá skipti hann yfir í Stjörnuna og var þar í eitt ár áður en hann skipti í KR fyrr á árinu. Fannar er bróðir Birkis Heimissonar, leikmanns Vals.

Fannar verður annar leikmaðurinn sem Nordsjælland fær frá KR á stuttum tíma því danska félagið keypti Alexander Rafn Pálmason síðasta sumar og fer hann til Danmerkur eftir um það bil mánuð.
Slapp
banner
banner