Damir framlengdi við Breiðablik (Staðfest)
Varnarmaðurinn Damir Muminovic hefur skrifað undir nýjan samning við Breiðablik sem gildir út næsta tímabil.
Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24409 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.
Varnarmaðurinn Damir Muminovic hefur skrifað undir nýjan samning við Breiðablik sem gildir út næsta tímabil.
Skoska félagið Celtic hefur fest kuap á írska landsliðsmanninum Adam Idah en hann kemur frá Norwich City fyrir 9,5 milljónir punda.
Danski miðjumaðurinn Gustav Bonde Dahl er genginn í raðir Fram en hann lék síðast með Vendsyssel í heimalandinu.
Brighton gekk í dag frá kaupum á þýska kantmanninum Brajan Gruda frá Mainz fyrir 25 milljónir punda.
Joao Mendes, 19 ára gamall sonur Ronaldinho, hefur samið við enska B-deildarfélagið Burnley en hann kemur til félagsins frá Barcelona á Spáni.
Bruno Fernandes, fyrirliði Manchester United á Englandi, hefur framlengt samning sinn við félagið til 2027. Þetta kemur fram í tilkynningu frá United.
Eyjakonan Cloé Lacasse hefur yfirgefið herbúðir enska úrvalsdeildarfélagsins Arsenal. Hún er búin að skrifa undir samning hjá Utah Royals í Bandaríkjunum. Hún skrifar undir samning hjá Utah til ársins 2027.
Stjarnan hefur staðfest sölu á Helga Fróða Ingasyni til hollenska B-deildarfélagsins Helmond Sport. Helgi skrifar undir fjöggura ára samning við hollenska félagið. Hinn átján ára gamli Helgi Fróði er mikið efni en þessi skemmtilegi miðjumaður hefur leikið 30 leiki fyrir Stjörnuna í efstu deild og skorað tvö mörk. Helmond Sport er félag sem stofnað var 1967 og hafnaði um miðja hollensku B-deildina á síðasta tímabili. Liðið komst upp í efstu deild 1982 og var þar í tvö tímabil.
ÍA hefur kallað til baka Breka Þór Hermannsson úr láni frá Njarðvík.
KR hefur kallað sóknarmanninn efnilega, Óðinn Bjarkason, aftur til félagsins frá KV.
Varnarmaðurinn Gunnar Gunnarsson hefur fengið félagaskipti frá Álftanesi í Grindavík.
Franska félagið Marseille hefur sótt framherjann Elye Wahi frá Lens en þetta var tilkynnt í gær.
Breiðablik hefur landað bandaríska sóknarmanninum Samönthu Rose Smith á láni frá Fjarðabyggð/Hetti/Leikni út þetta tímabil.
KA hefur gengið frá samningum við Dag Inga Valsson en hann kemur til félagsins frá Keflavík. Hann skrifaði undir samning sem gildir út næstu leiktíð.
HK hefur gengið frá samningum við Tarek Shihab en hann kemur til félagsins frá Gróttu.
FH hefur fengið Ingimar Torbjörnsson Stöle á láni frá KA út þetta tímabil.
Fjölnir hefur kallað sóknarmanninn Rafael Mána Þrastarson til baka úr láni frá Vængjum Júpiters.
Miðjumaðurinn Ásgeir Frank Ásgeirsson mun klára tímabilið með Aftureldingu í Lengjudeildinni, en hann fær félagaskipti úr Hvíta riddaranum.
FH hefur styrkt sig fyrir lokakafla tímabilsins en finnski bakvörðurinn Anna Nurmi er komin til félagsins frá Breiðabliki.
Það hefur verið nóg að gera hjá enska úrvalsdeildarfélaginu Manchester United í kvöld en það var rétt í þessu að kynna kaupin á Noussair Mazraoui frá Bayern München.