Fotbolti.net
14.08.24 - 07:00
Brynjar Ingi Erluson

Gunnar Gunnars í Grindavík (Staðfest)

Gunnar Gunnars í Grindavík (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Varnarmaðurinn Gunnar Gunnarsson hefur fengið félagaskipti frá Álftanesi í Grindavík.
Gunnar hefur ekkert spilað í sumar en á síðasta ári lék hann tvo leiki með Álftanesi.

Hann var í liði Fram sem vann Lengjudeildina án þess að tapa leik árið 2021 en hann lék 49 leiki á fimm árum sínum hjá félaginu.

Áður lék hann með Haukum, Gróttu, Val, Hamri og Þrótti ásamt því að hafa spilað með yngri flokkum Víkings og Stjörnunnar.

Gunnar hefur nú fengið félagaskipti yfir í Grindavík og verður því löglegur með liðinu er það mætir Þór í Safamýrinni í Lengjudeildinni í kvöld.

Grindavík er í 9. sæti Lengjudeildarinnar með 17 stig þegar sex umferðir eru eftir af aðalhlutanum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.