Aaron Ramsey tekur við Oxford (Staðfest)
Oxford United, sem leikur í ensku C-deildinni á næstu leiktíð, hefur ráðið velska þjálfarann Aaron Ramsey sem næsta stjóra félagsins, en þetta kom fram í tilkynningu í dag.
Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24378 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.
Oxford United, sem leikur í ensku C-deildinni á næstu leiktíð, hefur ráðið velska þjálfarann Aaron Ramsey sem næsta stjóra félagsins, en þetta kom fram í tilkynningu í dag.
Gary O'Neil hefur verið staðfestur sem nýr stjóri Ipswich. O'Neil, sem er fyrrum stjóri Bournemouth og Wolves, tekur við af Kieran McKenna sem hætti óvænt sem stjóri liðsins og tók sér hlé frá fótbolta eftir að hafa komið liðinu aftur upp í úrvalsdeildina. O'Neil, sem er 43 ára, var síðast stjóri Strasbourg í Frakklandi og stýrði liðinu í áttunda sæti frönsku deildarinnar á síðasta tímabili.
Daníel Freyr Kristjánsson er genginn í raðir Lyngby frá Midtjylland. Hann skrifar undir fjögurra ára samning við félagið, til sumarsins 2030. Daníel er tvítugur vinstri bakvörður sem er uppalinn í Stjörnunni. Hann var keyptur til Midtjylland þegar hann var sextán ára, 2022 en Daníel hefur leikið á láni hjá Fredericia undanfarin tvö tímabil.
Gennaro Gattuso er tekinn við sem nýr stjóri Lazio. Hann tekur við af Maurizio Sarri sem yfirgaf félagið eftir tímabil og er nú tekinn við Atalanta. Gennaro Gattuso hætti sem landsliðsþjálfari í mars, eftir að hafa mistekist að koma liðinu á HM í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada. Ítalía tapaði gegn Bosníu og Hersegóvínu í umspili.
Brasilíska félagið Fluminense hefur staðfest komu Thiago Silva til félagsins en hann skrifar undir sex mánaða samning.
Argentíski stjórinn, Martin Demichelis, hefur verið ráðinn sem nýr stjóri þýska félagsins RB Leipzig. Demichelis kemur frá Malaga en hann tók við stjórnartaumunum á spænska liðinu í febrúar en tókst ekki að bjarga félaginu frá falli. Undir stjórn Demichelis sótti Malaga 18 stig úr 12 deildarleikjum þrátt fyrir það endaði liðið á að falla með 42 stig sem er nokkuð sjaldgæft.
Dean Martin, aðstoðarþjálfari ÍA, mun láta af störfum hjá félaginu í byrjun júlí en hann er að taka við nýju og spennandi starfi hjá Al Nahdha sem leikur í efstu deild í Óman. Þetta kemur fram í tilkynningu Skagamanna í kvöld.
Franska félagið Rennes hefur fest kaup á portúgalska miðverðinum Goncalo Oliveira frá Benfica fyrir 3,5 milljónir evra.
Matt Bloomfield hefur verið látinn taka poka sinn hjá enska félaginu Oxford United eftir að hann féll með liðið niður í C-deildina.
Tottenham hefur tilkynnt um komu hollenska varnarmannsins Jan Paul van Hecke, en hann kemur til félagsins frá Brighton.
Tékkneska félagið Sigma Olomouc hefur fest kaup á íslenska framherjanum Hilmi Rafni Mikaelssyni, sem kemur frá Noregsmeisturum Viking.
Spænski landsliðsmaðurinn Victor Munoz er genginn í raðir Liverpool frá Osasuna fyrir tæplega 35 milljónir punda. Þetta tilkynnir félagið á heimasíðu sinni.
Ibrahima Konate hefur gengið til liðs við Real Madrid og skrifar hann undir fjögurra ára samning við félagið. Hann kemur á frjálsri sölu frá Liverpool. Konate gekk til liðs við Liverpool frá RB Leipzig árið 2021 og spilaði hann 183 leiki fyrir félagið. Samningsviðræður hans og Liverpool strönduðu vegna launakrafa.
Giovanni van Bronckhorst er tekinn við hollenska liðinu Feyenoord en hann kemur til félagsins frá Liverpool. Samningurinn er til tveggja ára með möguleika á ári til viðbótar.
Real Madrid hefur tilkynnt um komu portúgalska miðjumannsins Bernardo Silva á frjálsri sölu frá Manchester City.
Norska stórveldið Rosenborg í Þrándheimi hefur staðfest ráðningu á Frey Alexanderssyni sem nýjum aðalþjálfara félagsins. Freyr skrifaði undir samning til 2029 og mun formlega vera kynntur á fréttamannafundi á föstudag. <i>„Ég er virkilega stoltur og þakklátur fyrir þann mikla áhuga sem ég fékk frá stjórn félagsins. Okkar viðræður hafa verið hreinskilnar, opnar og heiðarlegar. Ég hef mikla trú á því að saman getum við komið sigursælasta félagi Noregs þangað sem það á heima,"</i> segir Freyr við heimasíðu félagsins.
Ruben Amorim hefur tekið við sem nýr stjóri AC Milan. Hann tekkur við af Massimiliano Allegri og skrifar undir tveggja ára samning við félagið með möguleika um árs framlengingu. Amorim var rekinn sem stjóri Man Utd í upphafi árs. Portúgalinn stýrði United alls í fjórtán mánuði en stóðst ekki væntingar. Þar áður gerði hann góða hluti með Sporting í heimalandinu. AC Milan endaði í fimmta sæti undir stjórn Allegri á nýliðnu tímabili og missti liðið af Meistaradeildarsæti eftir tap gegn Cagliari í lokaumferðinni. Allegri fékk reisupassann að tímabilinu loknu en hann verður kynntur sem nýr stjóri Napoli síðar í vikunni.
Antonio Rudiger hefur samþykkt nýjan eins árs samning við Real Madrid. Þýski landsliðsmiðvörðurinn hefði orðið samningslaus í lok mánaðar og stefndi á tíma ekki í að hann fengi nýjan samning hjá Real.
Franski blaðamaðurinn Romain Molina greindi frá því að fótboltasamband Túnis hafi síðasta sólarhringinn átt í viðræðum við Herve Renard um að taka við karlalandsliðinu sem spilar á HM. Nú er sambandið búið að staðfesta að Renard hafi skrifað undir tímabundinn samning og stýri Túnis út heimsmeistaramótið.
Ítalska félagið Udinese hefur fest kaup á ítalska sóknartengiliðunum Nicolo Zaniolo frá Galatasaray.