Fotbolti.net
23.06.26 - 15:05
Kári Snorrason

Gattuso tekinn við Lazio (Staðfest)

Gattuso tekinn við Lazio (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Gennaro Gattuso er tekinn við sem nýr stjóri Lazio. Hann tekur við af Maurizio Sarri sem yfirgaf félagið eftir tímabil og er nú tekinn við Atalanta.

Gennaro Gattuso hætti sem landsliðsþjálfari í mars, eftir að hafa mistekist að koma liðinu á HM í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada. Ítalía tapaði gegn Bosníu og Hersegóvínu í umspili.
Lazio endaði í níunda sæti Serie A á síðasta tímabili og tapaði fyrir Inter í úrslitaleik Coppa Italia.

Gattuso hefur komið víða við sem þjálfari en Lazio er ellefta liðið sem hann tekur við á þrettán ára löngum þjálfaraferli.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.