Fotbolti.net
23.06.26 - 18:14
Brynjar Ingi Erluson

Aaron Ramsey tekur við Oxford (Staðfest)

Aaron Ramsey tekur við Oxford (Staðfest)
Canon

Mynd: Oxford United

Oxford United, sem leikur í ensku C-deildinni á næstu leiktíð, hefur ráðið velska þjálfarann Aaron Ramsey sem næsta stjóra félagsins, en þetta kom fram í tilkynningu í dag.
Ramsey, sem lagði skóna á hilluna á síðasta ári eftir að hafa leikið með Arsenal, Cardiff, Juventus og fleiri félögum, hefur starfað innan velska landsliðsins og var einnig bráðabirgðastjóri Cardiff á síðasta ári.

Hann fær nú það verkefni að koma Oxford United aftur upp í B-deildina.

„Það er heiður og forréttindi að vera ráðinn stjóri Oxford United. Eftir viðræður við félagið fann ég fyrir metnaðinum og viljanum til að ná árangri, sem gerir mig enn spenntari fyrir þessu tækifæri.

„Þetta er augnablik sem ég hef undirbúið mig fyrir í mörg ár. Ég hef spilað undir mörgum af bestu stjórum fótboltans og öðlast mikla reynslu í krefjandi umhverfi á mínum ferli.“

„Ég vil nýta það sem ég hef lært og byggja upp menningu sem einkennist af háum kröfum, fagmennsku og vinnusemi hjá þessum hæfileikaríka leikmannahópi,“ sagði Ramsey.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.