Fotbolti.net
21.06.26 - 19:11
Brynjar Ingi Erluson

Dean Martin kveður ÍA (Staðfest) - Tekur við spennandi starfi í Óman

Dean Martin er að hætta hjá ÍA

Dean Martin er að hætta hjá ÍA

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Dean Martin, aðstoðarþjálfari ÍA, mun láta af störfum hjá félaginu í byrjun júlí en hann er að taka við nýju og spennandi starfi hjá Al Nahdha sem leikur í efstu deild í Óman. Þetta kemur fram í tilkynningu Skagamanna í kvöld.
Dean hefur gegnt mikilvægu hlutverki hjá ÍA sem annar tveggja aðstoðarþjálfara meistaraflokks karla, ásamt Aroni Ými Péturssyni, auk þess að sinna styrktarþjálfun innan félagsins.

Skagamenn greina frá því að síðasti leikur hans með ÍA verður gegn Breiðabliki þann 4. júlí áður en hann heldur til Óman.

„Dean hefur verið afar metnaðarfullur og faglegur í sínum störfum hjá félaginu og þökkum við honum kærlega fyrir hans framlag til ÍA í bili.

„Við hjá ÍA erum stolt af því að sjá þjálfara okkar fá tækifæri til að taka næstu skref á ferlinum á alþjóðlegum vettvangi.
Við óskum Dean Martin velfarnaðar í nýju hlutverki og hlökkum til að fylgjast með honum takast á við nýjar áskoranir.“
segir í tilkynningu Skagamanna.

ÍA mun nú skoða hvernig best sé að fylla það stóra skarð sem hann skilur eftir sig og halda áfram uppbyggingu þjálfarateymisins.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.