Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24387 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR30.01.2026, 09:00

Frá Brighton til Parísar (Staðfest)

Diego Coppola er genginn til liðs við Paris FC á láni frá Brighton út tímabilið. Coppola er 22 ára gamall ítalskur miðvörður en hann gekk til liðs við Brighton frá Hellas Verona síðasta sumar.

FRÉTTIR30.01.2026, 07:30

Ajax kaupir Zinchenko (Staðfest)

Úkraínumaðurinn Oleksandr Zinchenko er á leið til Ajax frá Arsenal en Fabrizio Romano greinir frá því að hann muni skrifa undir samning við hollenska félagið í dag.

FRÉTTIR30.01.2026, 06:00

Portúgalskur miðjumaður í Tindastól (Staðfest)

Tindastóll tilkynnti um komu Rita Lang til félagsins en hún skrifar undir samning við félagið fyrir baráttuna í Lengjudeildinni næsta sumar. Lang er 27 ára gömul og er portúgalskur miðjumaður. Hún hefur spilað í Bandaríkjunum, Portúgal og á Írlandi.

FRÉTTIR29.01.2026, 16:00

Alex Freyr óvænt til Færeyja (Staðfest) - Njarðvíkingar ósáttir við umboðsmanninn

Alex Freyr Elísson var í dag tilkynntur sem nýr leikmaður NSÍ Runavíkur. Hann kemur til félagsins eftir að hafa verið í um tvo mánuði hjá Njarðvík. Alex kom til Njarðvíkur frá Fram í vetur og hefur leikið með liðinu í æfingaleikjum. Hann var hins vegar með ákvæði í samningi sínum að hann gæti farið erlendis ef áhugi kæmi þaðan. Alex er 28 ára hægri bakvörður sem skrifar undir samning við NSÍ sem gildir út tímabilið 2026. Sigurður Ragnar Eyjólfsson er þjálfari NSÍ.

FRÉTTIR29.01.2026, 14:39

Linta fær sinn fyrrum lærisvein til Eyja (Staðfest)

Milan Jezdimirovic hefur skrifað undir samning við ÍBV. Hann er fyrsti serbneski leikmaðurinn sem Serbinn Aleksandar Linta fær til Eyja eftir að hann tók við sem þjálfari liðsins fyrr í þessum mánuði. Fyrir í hópnum hjá ÍBV var Serbinn Milan Tomic sem kom fyrir síðasta tímabil.

FRÉTTIR28.01.2026, 20:12

Sveinn Aron til Cavese (Staðfest)

Sveinn Aron Guðjohnsen er genginn til liðs við Cavese í C-deildinni á Ítalíu en hann gerir samning út leiktíðina með möguleika á að framlengja um ár til viðbótar ef ákveðnum skilyrðum er mætt.

FRÉTTIR28.01.2026, 16:44

Sterling búinn að rifta við Chelsea (Staðfest)

Raheem Sterling hefur yfirgefið Chelsea eftir að hafa gert samkomulag við félagið um riftun á samningi. Átján mánuðir voru eftir af samningi hans við Chelsea en hann kom til félagsins fyrir 47,5 milljónir punda frá Manchester City 2022.

FRÉTTIR28.01.2026, 13:30

Róbert Elís til Eyja (Staðfest)

ÍBV hefur fengið Róbert Elís Hlynsson á láni frá KR út komandi tímabil. Róbert Elis skrifaði undir hjá KR eftir tímabilið 2024, kom frá ÍR og hefur skorað níu mörk í 20 leikjum síðan. Fimm af þeim skoraði hann í þessum mánuði í Reykjavíkrumótinu þar sem hann er markahæsti leikmaður mótsins. Róbert Elís er fæddur árið 2007 og er fjölhæfur leikmaður sem hefur spilað sem fremsti maður hjá KR í síðustu leikjum. Hann er nú á förum til Eyja og er fyrsti leikmaðurinn sem félagið fær eftir að Aleksandar Linta tók við sem þjálfari.

FRÉTTIR28.01.2026, 11:30

Maupay til Sevilla (Staðfest) - Létu hann heyra það í ágúst

Neal Maupay hefur verið lánaður til Sevilla frá franska félaginu Marseille. Margir mun eftir Maupay hjá Brighton og Everton í ensku úrvalsdeildinni. Maupay er 29 ára Frakki sem samdi við Marseille síðasta sumar og hefur einungis komið einu sinni við sögu í deildinni í vetur.

FRÉTTIR28.01.2026, 11:07

West Ham fær Adama Traore ódýrt (Staðfest)

West Ham hefur gengið frá kaupum á Adama Traore frá Fulham. Traore er þrítugur vængmaður sem vakti mikla athygli hjá Wolves á sínum tíma og spilaði með Barcelona. Hjá West Ham hittir hann fyrir stjórann Nuno Espirito Santo en þeir unnu saman hjá Wolves á árunum 2018-21. <i>&bdquo;Ég er svo glaður að vera kominn hinggað, glaður að geta hjálpað liðinu eins mikið og hægt er og að geta sýnt mín gæði. Þetta er stórt félag með gríðarlega marga aðdáendur. Ég hef fylgst með West Ham frá því að ég horfði ungur á kvikmyndir þar sem West Ham kom fyrir. Ég veit hversu ástríðufullir stuðningsmennirnir eru. Ég elska þessa áskorun. Ég held að allir hafi trú og ég trúi að við munum ná markmiðinu okkar,"</I> segir Traore.

FRÉTTIR27.01.2026, 23:18

Hlín til Fiorentina (Staðfest)

Kantmaðurinn fjölhæfi Hlín Eiríksdóttir mun leika með ítalska félaginu Fiorentina á lánssamningi út tímabilið.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.