Igor Julio aftur til Brighton (Staðfest)
Brighton og West Ham eru búin að ná samkomulag um miðvörðinn Igor Julio sem var hjá Hömrunum á lánssamningi sem átti að gilda út tímabilið.
Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24387 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.
Brighton og West Ham eru búin að ná samkomulag um miðvörðinn Igor Julio sem var hjá Hömrunum á lánssamningi sem átti að gilda út tímabilið.
Championship félagið Middlesbrough er búið að krækja í Jeremy Sarmiento úr röðum Brighton, eftir að hafa varið fyrri hluta tímabilsins á láni hjá Cremonese í ítalska boltanum.
Aston Villa er búið að staðfesta félagaskipti Tammy Abraham til félagsins úr röðum Besiktas.
Helgi Kolviðsson hefur sagt upp störfum sem þjálfari hjá þýska félaginu Pfullendorf. Helgi greinir sjálfur frá þessu í færslu á Instagram og segir þar að það sé vegna annarra anna. Helgi er í starfi sem umsjónarmaður á stóru útivistarsvæði í Pfullendorf. Félagið er í 6. efstu deild í Þýskalandi en Helgi hefur verið við stjórnvölinn hjá Pfullendorf frá því í mars, þar áður hafði hann verið yfirmaður íþróttamála hjá félaginu. Liðið var í næst neðsta sæti deildarinnar með ellefu leikir eftir þegar Helgi tók við. En hann sneri slæmu gengi við og vann liðið átta leiki, tapaði tveimur og gerði eitt jafntefli undir stjórn Helga. Pfullendorf situr nú í 7. sæti af sextán í Verbandsliga Südbaden eftir sextán leiki.
Hinn nítján ára gamli Rayan hefur gengið í raðir Bournemouth. Hann segist vonast til þess að gleðja stuðningsmenn. Rayan kemur frá Vasco de Gama og skrifaði undir fimm og hálfs árs samning. Kaupverðið er 25 milljónir punda en gæti hækkað upp í 30 eftir ákvæðum. <i>„Rayan er leikmaður sem við höfum fylgst náið með og hefur þegar sýnt mikinn stöðugleika og þroska miðað við aldur. Við teljum hann geta náð mjög langt og að við getum boðið honum upp á rétta umhverfið til að láta að sér kveða,"</I> segir Tiago Pinto, yfirmaður fótboltamála hjá Bournemouth. Rayan skoraði 20 mörk í 57 leikjum fyrir Vasco da Gama og skoraði tvisvar fyrir U20 lið félagsins. Hann er örvfættur sóknarmaður sem getur spilað í öllum sóknarstöðunum. Honum er ætlað að fylla skarð Antoine Semenyo sem var seldur til Manchester City fyrr í þessum mánuði.
Sigurður Bjartur Hallsson hefur verið seldur frá FH til spænska félagsins AD Merida sem er í C-deildinni. Sigurður Bjartur er 26 ára framherji sem skoraði sextán mörk í Bestu deildinni á síðasta tímabili og endaði sem næstmarkahæsti leikmaður deildarinnar.
Bournemouth hefur sótt gríska markvörðinn Christos Mandas á láni frá Lazio út tímabilið. Mandas, sem er 24 ára gamall, hefur spilað 33 leiki með Lazio frá því að hann gekk til liðs við félagið fyrir þremur árum. Hann hefur þó aðeins leikið einn leik á núverandi tímabili með ítalska félaginu. Lazio er þegar búið að finna arftaka Mandas, þar sem félagið tilkynnti fyrr í dag að markvörðurinn Edoardo Motta hafi verið keyptur frá Reggina. Hann er fyrsti gríski leikmaður Bournemouth, en hann á jafnframt tvo landsleiki að baki fyrir Grikkland.
Hinn 18 ára gamli Dro Fernandez er genginn til liðs við PSG frá Barcelona en hann skrifar undir samning til ársins 2030 við franska félagið. Fernandez kom inn í akademíu Barcelona árið 2022 eftir að hafa hafnað bæði Real Betis og Real Madrid. Hann æfði með aðalliðinu á undirbúningstímabilinu og skoraði í fyrsta leik sínum er hann kom inn á í 3-1 sigri á Vissel Kobe í æfingaleik í Japan.
Sveinn Aron Guðjohnsen og norska liðið Sarpsborg hafa komist að samkomulagi um að hann rifti samningi sínum við félagið. Þessi 27 ára gamli framherji gekk til liðs við félagið frá Hansa Rostock í Þýskalandi í ágúst 2024. Hann skoraði tíu mörk og lagði upp þrjú í 33 leikjum fyrir liðið. Hann skoraði þrjú mörk í tveimur byrjunarliðsleikjum á liðnu tímabili en hann kom inn á sem varamaður í 17 leikjum.
Bjarni Páll Linnet Runólfsson hefur skrifað undir samning við Fram en hann gengur til liðs við félagið frá Aftureldingu. Hann skrifar undir samning út árið 2027.
Chelsea hefur keypt táninginn Yisa Alao frá Sheffield Wednesday en hann hefur gert tveggja og hálfs árs samning. Chelsea borgar um 500 þúsund pund fyrir þennan 17 ára strák, sem spilar sem vinstri bakvörður. Alao lék fimm leiki fyrir Wednesday, sem er í botnsæti Championship-deildarinnar og í greiðslustöðvun, síðan hann lék sinn fyrsta leik 16 ára í ágúst. Wednesday mun fá árangurstengdar greiðslur ef ferill Alao þróast að óskum.
Kristall Máni Ingason er genginn í raðir norska liðsins Brann. Hann skrifar undir samning til ársins 2029 við félagið. Hann kemur til Brann frá danska liðinu SönderjyskE, þar sem hann hefur verið lykilmaður fyrri hluta tímabils. Hann er markahæsti leikmaður liðsins sem situr í 4. sæti dönsku úrvalsdeildarinnar. Kristall hefur æft með Brann á Marbella þar sem liðið er í æfingaferð um þessar mundir. Hann verður þriðji Íslendingurinn í leikmannahópi félagsins en þar fyrir eru Eggert Aron Guðmundsson og Sævar Atli Magnússon. Freyr Alexandersson er auðvitað þjálfari liðsins.
Ísold Hallfríðar Þórisdóttir er búin að skipta alfarið yfir til Hauka eftir að hafa leikið með liðinu á láni frá Val í fyrra.
ÍR er búið að semja við Jóhönnu Elísabetu Guðmundsdóttur sem kemur úr röðum Gróttu.
Reynir Sandgerði hefur staðfest félagaskipti Max William Leitch til félagsins úr röðum Hafna.
Leicester City er búið að reka Martí Cifuentes úr þjálfarastarfinu eftir innan við sjö mánuði frá ráðningu.
Ítalski gleðigjafinn Mario Balotelli er að snúa aftur á völlinn rúmu ári eftir að hafa spilað síðast fótboltaleik.
Napoli hefur fest kaup á brasilíska leikmanninum Giovane Santana dos Nascimento frá fallbaráttuliði Hellas Verona.
Vestri er að styrkja sig mikið þessa dagana í kvennaflokki og var að krækja í landsliðskonu frá Filippseyjum.
Bosníski framherjinn Edin Dzeko er búinn að skipta yfir í þýska boltann á frjálsri sölu frá Fiorentina eftir misheppnaða endurkomu í Serie A.