Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25087 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR26.01.2026, 18:23

Sveinn Aron riftir við Sarpsborg (Staðfest)

Sveinn Aron Guðjohnsen og norska liðið Sarpsborg hafa komist að samkomulagi um að hann rifti samningi sínum við félagið. Þessi 27 ára gamli framherji gekk til liðs við félagið frá Hansa Rostock í Þýskalandi í ágúst 2024. Hann skoraði tíu mörk og lagði upp þrjú í 33 leikjum fyrir liðið. Hann skoraði þrjú mörk í tveimur byrjunarliðsleikjum á liðnu tímabili en hann kom inn á sem varamaður í 17 leikjum.

FRÉTTIR26.01.2026, 17:30

20 mest lesnu fréttir vikunnar - Núll virðing

Damir Muminovic fór í viðtal sem vakti gríðarlega athygli, Xabi Alonso er orðaður við stjórastöðu Liverpool og Rasmus Höjlund hrósaði íslenskum leikmanni. Hér að neðan má sjá lista yfir 20 vinsælustu fréttir Fótbolta.net í síðustu viku, raðað eftir hversu oft þær eru lesnar.

FRÉTTIR26.01.2026, 14:07

Yisa Alao til Chelsea (Staðfest)

Chelsea hefur keypt táninginn Yisa Alao frá Sheffield Wednesday en hann hefur gert tveggja og hálfs árs samning. Chelsea borgar um 500 þúsund pund fyrir þennan 17 ára strák, sem spilar sem vinstri bakvörður. Alao lék fimm leiki fyrir Wednesday, sem er í botnsæti Championship-deildarinnar og í greiðslustöðvun, síðan hann lék sinn fyrsta leik 16 ára í ágúst. Wednesday mun fá árangurstengdar greiðslur ef ferill Alao þróast að óskum.

FRÉTTIR26.01.2026, 12:18

Kristall Máni í Brann (Staðfest) - „Er orðinn þroskaðri frá síðustu Noregsdvöl“

Kristall Máni Ingason er genginn í raðir norska liðsins Brann. Hann skrifar undir samning til ársins 2029 við félagið. Hann kemur til Brann frá danska liðinu SönderjyskE, þar sem hann hefur verið lykilmaður fyrri hluta tímabils. Hann er markahæsti leikmaður liðsins sem situr í 4. sæti dönsku úrvalsdeildarinnar. Kristall hefur æft með Brann á Marbella þar sem liðið er í æfingaferð um þessar mundir. Hann verður þriðji Íslendingurinn í leikmannahópi félagsins en þar fyrir eru Eggert Aron Guðmundsson og Sævar Atli Magnússon. Freyr Alexandersson er auðvitað þjálfari liðsins.

FRÉTTIR26.01.2026, 08:00

Haukar fá Ísold frá Val (Staðfest)

Ísold Hallfríðar Þórisdóttir er búin að skipta alfarið yfir til Hauka eftir að hafa leikið með liðinu á láni frá Val í fyrra.

FRÉTTIR25.01.2026, 09:00

Breytingar á hópi Fiorentina (Staðfest)

Bosníski framherjinn Edin Dzeko er búinn að skipta yfir í þýska boltann á frjálsri sölu frá Fiorentina eftir misheppnaða endurkomu í Serie A.

FRÉTTIR24.01.2026, 14:48

Elísa Viðars í Breiðablik (Staðfest)

Íslands- og bikarmeistarar Breiðabliks hafa fengið til sín svakalegan styrk fyrir komandi leiktíð en Elísa Viðarsdóttir er gengin í raðir félagsins frá Val.

FRÉTTIR24.01.2026, 13:47

Alfons Sampsted til Go Ahead Eagles (Staðfest)

Íslenski varnarmaðurinn Alfons Sampsted er formlega genginn til liðs við Go Ahead Eagles í Hollandi, en hann kemur til félagsins frá Birmingham City. Hann skrifaði undir tveggja og hálfs árs samning.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.