FRÉTTIR16.01.2026, 12:42
Eyjólfur Héðinsson hefur tekið við nýju hlutverki hjá Breiðabliki, en hann fær titilinn yfirmaður fótboltamála hjá félaginu. Hann hefur verið í starfi sem deildarstjóri meistaraflokka félagsins síðustu misseri og verið starfsmaður Breiðabliks frá árinu 2022. Hlutverk hans stækkar eftir að Alfreð Finnbogason, tæknilegur ráðgjafi fótboltadeildarinnar, sagði skilið við félagið.
Eyjólfur ber ábyrgð á faglegu starfi deildarinnar, og leiðir fótboltalegar áherslur og stefnumörkun. Hann býr yfir mikilli reynslu, er fyrrum atvinnumaður og hefur unnið styrktarþjálfari og aðstoðarþjálfari. Hann lék á sínum tíma fimm A-landsleiki.
Breiðablik tilkynnti í dag um breytingar á skipulagi og skipuriti fótboltadeildarinnar.
<i>„Markmið breytinganna er að einfalda og skýra skipulag, boðleiðir og stjórnun. Með þessum breytingum, sem samþykktar voru af stjórn í byrjun desember, verður lögð enn frekari áhersla á faglegt starf deildarinnar, allt frá yngstu flokkunum og upp í meistaraflokka félagsins, og skýra framtíðarsýn,"</I> segir í tilkynningunni.
FRÉTTIR16.01.2026, 11:30
Ruud van Nistelrooy hefur verið ráðinn nýr aðstoðarþjálfari Holland og verður hægri hönd Ronald Koeman á komandi HM sem fer fram í sumar.
Þetta er í þriðja sinn sem Nistelrooy tekur við starfi aðstoðarþjálfara landsliðsins, en hann gegndi því hlutverki einnig á árunum 2014 til 2015 og á Evrópumótinu árið 2021.
FRÉTTIR16.01.2026, 08:52
Donyell Malen hefur yfirgefið Aston Villa og er genginn í raðir ítalska félagsins Roma.
Villa tilkynnir að Malen sé genginn í raðir Roma fyrir upphæð sem ekki sé gefin upp en Roma tilkynnir að þetta sé lánssamningur með möguleika á kaupum.
FRÉTTIR15.01.2026, 23:00
Orri Fannar Þórisson og Davíð Guðrúnarson eru hættir sem þjálfarar KV í 3. deildinni.
FRÉTTIR15.01.2026, 20:40
Sádi-Arabíska stórveldið Al-Hilal er búið að tryggja sér þjónustu miðvarðarins Pablo Marí næstu sex mánuðina.
FRÉTTIR15.01.2026, 20:00
Tottenham er búið að staðfesta ráðningu á John Heitinga sem nýjum aðstoðarþjálfara fyrir Thomas Frank.
FRÉTTIR15.01.2026, 19:20
Aston Villa er búið að ganga frá kaupum á hinum 17 ára gamla Brian Madjo sem kemur til félagsins úr röðum franska félagsins Metz.
FRÉTTIR15.01.2026, 19:00
Ítalska félagið Lazio er búið að kaupa tvo leikmenn og selja tvo á fyrri hluta janúargluggans.
FRÉTTIR15.01.2026, 18:20
Tyrkneska stórveldið Fenerbahce er búið að festa kaup á franska miðjumanninum Mattéo Guendouzi sem kemur til félagsins úr röðum Lazio.
FRÉTTIR15.01.2026, 17:33
Leeds United er búið að staðfesta félagaskipti Facundo Buonanotte til félagsins á lánssamningi sem gildir út tímabilið.
FRÉTTIR15.01.2026, 16:30
Landsliðskonan Guðrún Arnardóttir er búin að finna sér nýtt félag eftir að hafa rengið samningi sínum rift hjá Braga í lok síðasta árs.
Guðrún skrifar undir samning við Hammarby í Svíþjóð. Hún þekkir mjög til í Svíþjóð en hún fór til Djurgården frá Breiðabliki fyrir tímabilið 2019, var þar fyrstu árin í Svíþjóð áður en hún fór til Rosengård þar sem hún varð sænskur meistari í þrígang. Síðasta sumar fór hún svo til Portúgals.
Guðrún er þrítug og semur út tímabilið 2027. Hammarby endaði í 2. sæti deildarinnar á síðasta tímabili og vann bikarinn.
FRÉTTIR15.01.2026, 07:30
Hinn 18 ára gamli Robinio Vaz er genginn til liðs við Roma frá Marseille. Hann skrifar undir samning út árið 2030.
Roma borgar um 25 milljónir evra fyrir hann.
FRÉTTIR15.01.2026, 06:00
Freyr Jónsson hefur skrifað undir tveggja ára samning við Dalvík/Reyni. Hann skrifar undir tveggja ára samning.
Freyr er miðjumaður fæddur árið 2001 en hann spilaði með Dalvík/Reyni árið 2024 áður en hann hélt til Bandaríkjanna í mastersnám. Hann varð síðan fyrir meiðslum og spilaði ekkert síðasta sumar.
FRÉTTIR15.01.2026, 06:00
Miðvörðurinn Andrea Kristín Ólafsdóttir hefur skrifað undir samning við Selfoss. Hún kemur til liðsins frá Aftureldingu.
Selfoss spilar í Lengjudeildinni næsta sumar eftir að hafa rúllað yfir 2. deild síðasta sumar.
FRÉTTIR14.01.2026, 18:30
Íslands- og bikarmeistarar Breiðabliks hafa samið við bandaríska miðjumanninn Katelyn Duong.
Hún á 9 landsleiki að baki fyrir hönd U20 landslið Bandaríkjanna.
FRÉTTIR14.01.2026, 16:14
Tottenham hefur gengið frá kaupum á enska miðjumanninum Conor Gallagher en hann kemur frá Atletico Madrid og greiðir enska félagið 34 milljónir punda fyrir hann. Hann er uppalinn hjá grönnum Tottenham, Chelsea.
Hann er 25 ára og skrifar undir langtímasamning við Tottenham. Gallagher á að baki 22 A-landsleiki og kom einn af þeim á síðasta ári.
Eins og fyrr segir er Gallagher uppalinn hjá Chelsea og lék með liðinu áður en hann var seldur til Atletico Madrid sumarið 2024. Þar skoraði hann 77 leiki í öllum keppnum og skoraði sjö mörk,
Hann er fyrsti leikmaðurinn sem Tottenham fær í sínar raðir í glugganum en von er á því að brasilíski bakvörðurinn Souza verði einnig kynntur á næstu dögum.
FRÉTTIR14.01.2026, 15:45
Nýliðar Grindavíkur/Njarðvík halda áfram að þétta raðirnar fyrir komandi tímabil í Bestu deildinni. Í dag var kynntur nýr leikmaður, bandarískur miðvörður.
Hannah McLaughlin útskrifaðist frá Vanderbilt háskólanum í fyrra.
Grindavík/Njarðvík endaði í 2. sæti Lengjudeildarinnar síðasta sumar og verður því í Bestu deildinni á komandi tímabili. Miðað við drög að niðurröðun sem birt var í dag mætir liðið Val á útivelli í 1. umferð deildarinnar þann 25. apríl.
Bandaríski markvörðurinn Lauren Kellett samdi við félagið fyrr í þessum mánuði og landsliðskonan Natasha Anasi skrifaði undir í byrjun nóvember.
FRÉTTIR14.01.2026, 14:30
María Catharina Ólafsdóttir Gros hefur verið keypt til sænska félagsins Djurgården en hún kemur til félagsins frá Linköping. Linköping féll úr sænsku úrvalsdeildinni en María átti gott tímabil og var valin nýliði ársins hjá félaginu. Hún skoraði sjö mörk og lagði upp þrjú í 26 leikjum. Djurgården endaði í fjórða sæti úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili.
Hún er fjölhæfur sóknarmaður sem getur einnig spilað sem hægri bakvörður. Hún skrifar undir þriggja ára samning við Djurgården. Hjá nýja félaginu hittir hún fyrir Willie Kirk sem þjálfaði hana hjá Linköping.
FRÉTTIR14.01.2026, 08:30
Þýska félagið RB Leipzig hefur staðfest kaupin á nígeríska vængmanninum Suleman Sani frá AS Trencin í Slóvakíu en kaupverðð er fimm milljónir evra.
FRÉTTIR14.01.2026, 08:00
Mónakó í frönsku deildinni hefur sótt belgíska varnarmanninn Wout Faes á láni frá enska B-deildarliðinu Leicester City.