Man Utd lækkar ekki verðmiða Rashford - Liverpool ræðir við Szoboszlai - Toney gæti snúið aftur til Englands
   mið 14. janúar 2026 08:30
Brynjar Ingi Erluson
Leipzig kaupir Nígeríumann á fimm milljónir evra (Staðfest)
Mynd: RB Leipzig
Þýska félagið RB Leipzig hefur staðfest kaupin á nígeríska vængmanninum Suleman Sani frá AS Trencin í Slóvakíu en kaupverðð er fimm milljónir evra.

Sani er 19 ára gamall en hann hóf feril sinn með B-deildarliði Wikki Tourists í Nígeríu áður en hann fór 17 ára gamall til Akwa United sem leikur í efstu deild þar í landi.

Þetta var árið 2024 en þá var Akwa í fallbaráttunni. Sani sá alfarið um það sjálfur að halda liðinu upp með 11 mörkum og fimm stoðsendingum í fimmtán leikjum.

Eftir að hafa verið valinn nýliði deildarinnar var hann seldur til AS Trencin í Slóvakíu þar sem hann hefur vakið mikla athygli og nú hefur Leipzig ákveðið að krækja í þennan efnilega kantmann.

Hann skrifaði undir langtímasamning við félagið í gær en ekki er ljóst hvort hann spili með liðinu út þetta tímabil eða verði lánaður í eitt af venslafélögum Leipzig.


Stöðutaflan Þýskaland Bundesliga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Bayern 22 18 3 1 82 19 +63 57
2 Dortmund 22 15 6 1 47 20 +27 51
3 Hoffenheim 22 14 3 5 47 28 +19 45
4 Stuttgart 22 13 3 6 41 29 +12 42
5 RB Leipzig 22 12 4 6 42 30 +12 40
6 Leverkusen 21 12 3 6 43 27 +16 39
7 Frankfurt 22 8 7 7 44 46 -2 31
8 Freiburg 22 8 6 8 32 36 -4 30
9 Hamburger 21 6 7 8 24 31 -7 25
10 Union Berlin 22 6 7 9 28 37 -9 25
11 Augsburg 22 7 4 11 25 39 -14 25
12 Köln 22 6 5 11 31 37 -6 23
13 Gladbach 22 5 7 10 25 37 -12 22
14 Mainz 22 5 6 11 25 37 -12 21
15 Wolfsburg 22 5 5 12 31 46 -15 20
16 Werder 22 4 7 11 22 42 -20 19
17 St. Pauli 22 4 5 13 20 39 -19 17
18 Heidenheim 22 3 4 15 19 48 -29 13
Athugasemdir
banner
banner