16.01.26 - 08:52
Elvar Geir Magnússon
Malen kominn til Roma (Staðfest)


Mynd: EPA


Mynd: EPA
Donyell Malen hefur yfirgefið Aston Villa og er genginn í raðir ítalska félagsins Roma.
Villa tilkynnir að Malen sé genginn í raðir Roma fyrir upphæð sem ekki sé gefin upp en Roma tilkynnir að þetta sé lánssamningur með möguleika á kaupum.
Villa tilkynnir að Malen sé genginn í raðir Roma fyrir upphæð sem ekki sé gefin upp en Roma tilkynnir að þetta sé lánssamningur með möguleika á kaupum.
Malen er 26 ára gamall hollenskur landsliðsmaður og getur spilað sem fremsti maður og á vængnum. Hann skoraði 7 mörk fyrir Villa á þessari leiktíð, en átti ekki fast hlutverk í liðinu.
Hann kom til Villa frá Borussia Dortmund fyrir ári síðan fyrir 20 milljónir punda.
Roma er í fimmta sæti ítölsku A-deildarinnar, sjö stigum frá toppnum.
Hann kom til Villa frá Borussia Dortmund fyrir ári síðan fyrir 20 milljónir punda.
Roma er í fimmta sæti ítölsku A-deildarinnar, sjö stigum frá toppnum.
?? Donyell Malen è un nuovo calciatore giallorosso! ????
— AS Roma (@OfficialASRoma) January 16, 2026
???? https://t.co/pSKnxvPbTr#ASRoma pic.twitter.com/CnlBCCta8M
