Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24389 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR13.01.2026, 15:47

Fram fær bandarískan sóknarmann (Staðfest)

Fram hefur samið við Giu Vicari um að spila með liðinu á komandi tímabili. Giavanna Vicari er 24 ára bandarískur sóknarmaður sem spilaði síðast með Newcastle Jets í Ástralíu. Ef marka má <i>Soccerway</I> spilaði Gia þó ekki mikið með liðinu og einungis tvær mínútur í keppnisleik á síðasta árinu. Þar á undan spilaði hún með Odene í Danmörku og segir í tilkynningu Fram að hún hafi verið markahæsti leikmaður danska liðsins.

FRÉTTIR13.01.2026, 15:20

Jakobína semur í Garðabæ (Staðfest)

Jakobína Hjörvarsdóttir hefur skrifað undir þriggja ára samning við Stjörnuna í Garðabæ. Hún kemur til Stjörnunnar frá Breiðabliki, en hún lék á láni með Stjörnunni frá Breiðabliki á síðasta tímabili. Jakobína er 21 árs miðvörður og er uppalin hjá Þór/KA. Hún samdi við Breiðablik fyrir tímabilið 2024.

FRÉTTIR13.01.2026, 12:55

FH fær tvo nýja leikmenn (Staðfest) - Annar bakvörður frá HK

Þeir Aron Jónsson og Kristján Snær Frostason voru rétt í þessu tilkynntir sem nýir leikmenn FH. Um tvo varnarmenn er að ræða. Báðar gera þeir samning út keppnistímabilið 2028 Aron er fæddur árið 2004 og kemur til FH frá Aftureldingu þar sem hann hefur spilað síðustu tvö tímabil. Hann er miðvörður sem uppalinn er hjá norska félaginu Brann. Hann lék á sínum tíma tvo leiki fyrir U19 landsliðið. Samningur hans við Aftureldingu rann út eftir síðasta tímabil. FH hefur verið með augun opin fyrir miðverði eftir að Ahmad Faqa hélt aftur til AIK í Svíþjóð eftir að hafa leikið á láni með FH síðasta sumar.

FRÉTTIR13.01.2026, 12:00

Sakho leggur skóna á hilluna (Staðfest)

Franski varnarmaðurinn Mamadou Sakho hefur lagt skóna á hilluna. Sakho, sem er 35 ára, er eflaust þekktastur fyrir tímann sinn hjá Liverpool. Hann lék alls 80 leiki með liðinu frá 2013 til 2017. Hann spilaði síðast með Torpedo Kutaisi í Georgíu en hann lék jafnframt með Crystal Palace, Montpellier og PSG.

FRÉTTIR12.01.2026, 18:11

Davíð Kristján til Larissa (Staðfest)

Davíð Kristján Ólafsson er genginn í raðir gríska félagsins Larissa sem kaupir hann frá Cracovia í Póllandi. Fótbolti.net sagði frá áhuga Larissa í síðustu viku.

FRÉTTIR12.01.2026, 17:18

Alonso hættur hjá Real Madrid (Staðfest)

Xabi Alonson er hættur sem aðalþjálfari Real Madrid. Spænska félagið segir frá þessum tíðindum í yfirlýsingu rétt í þessu. Þar kemur fram að um sameiginlega ákvörðun sé að ræða. Alonso kom til Real í sumar eftir að hafa gert frábæra hluti með Bayer Leverkusen i Þýskalandi sem var hans fyrsta stóra aðalþjálfarastarf. <i>„Alonso verður alltaf í miklum metum hjá stuðningsmönnum Real Madrid því hann er goðsögn hjá félaginu. Real Madrid verður alltaf hans heimili. Félagið þakkar Xabi Alonso og öllu hans teymi fyrir þeirra vinnu og óskar þeim alls hins besta í næsta kafla lífsins,"</I> segir m.a. í yfirlýsingunni.

FRÉTTIR12.01.2026, 17:13

Mackenzie Smith í FH (Staðfest)

FH tilkynnti í dag að Mackenzie Smith væri gengin í raðir félagsins en hún kemur frá Fram þar sem hún hefur spilað undanfarin tvö ár. Fótbolti.net sagði frá því í síðustu viku að Mackenzie væri á leið í FH.

FRÉTTIR12.01.2026, 15:17

Stefán Teitur til Hannover (Staðfest) - Verður númer 23

Stefán Teitur Þórðarson er formlega orðinn leikmaður þýska B-deildarliðins Hannover 96. Íslenski landsliðsmiðjumaðurinn er keyptur frá Preston North End. Íslenski landsliðsmiðjumaðurinn er 27 ára og skrifar undir samning til 30. júní 2029.

FRÉTTIR12.01.2026, 11:21

Áslaug Munda til Parma (Staðfest)

Landsliðskonan Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir er gengin í raðir ítalska félagsins Parma frá Breiðabliki. Parma situr í 10. sæti ítölsku úrvalsdeildarinnar, þremur stigum frá fallsæti þegar 13 umferðir eru eftir. Hún er þriðji Blikinn til að halda út í atvinnumennsku á síðustu vikunni og annar Blikinn til að semja á Ítalíu. Andre Rut Bjarnadóttir var tilkynnt hjá Anderlecht í Belgíu í síðutu viku og Birta Georgsdóttir samdi við Genoa. Vinstri bavkörðurinn kom til Breiðabliks frá Völsungi fyrir tímabilið 2018, varð fljótt einn allra besti bakvörður deildarinnar og kom sér strax í stórt hlutverk í Kópavoginum. Hún varð fjórum sinnum Íslandsmeistari og þrisvar sinnum bikarmeistari með Blikum. Áslaug Munda á að baki 21 A-landsleik og var hluti af landsliðinu sem fór á EM 2022 og 2025. Meiðsli, og aðallega höfuðmeiðsli, hafa sett strik í reikninginn hjá Mundu síðustu ár. Hún kom við sögu í sjö deildarleikjum, fimm Evrópuleikjum og þremur bikarleikjum á síðasta tímabili. Síðasta vor útskrifaðist hún úr Harvard og í viðtali við Fótbolta.net fyrir rúmu ári síðan talaði hún um að hún vildi prófa eitthvað nýtt í lífinu.

FRÉTTIR12.01.2026, 10:02

ÍBV tilkynnir ráðningu á Linta (Staðfest) - Þriggja ára samningur

ÍBV hefur tilkynnt um ráðningu á Aleksandar Linta. ÍBV hafnaði í níunda sæti Bestu deildarinnar á síðasta tímabili en Þorlákur Árnason lét óvænt af störfum í vetur. Fótbolti.net heimsótti Linta til Serbíu 2022 og Hafliði Breiðfjörð tók við hann ítarlegt viðtal.

FRÉTTIR12.01.2026, 08:00

Brentford fær ungan Belga (Staðfest)

Brentford hefur gengið frá kaupum á belgíska framherjanum Kaye Furo frá Club Brugge. Hann skrifar undir fimm og hálfs árs samning. Hann er aðeins 18 ára gamall en hann verður hluti af aðalliðinu. Brentford borgaði Club Brugge um níu milljónir punda fyrir hann.

FRÉTTIR12.01.2026, 06:00

Nikola Kristinn í Ægi (Staðfest)

Nikola Kristinn Stojanovic er genginn til liðs við Ægi frá Dalvík/Reyni. Hann mun því taka slaginn með Ægismönnum í Lengjudeildinni næsta sumar.

FRÉTTIR09.01.2026, 22:36

Ísabella Sara aftur í Val (Staðfest)

Ísabella Sara Tryggvadóttir er komin aftur í Val frá Rosengard en hún skrifar undir þriggja ára samning við félagið. Ísabella er fædd árið 2006 en hún gekk til liðs við Val árið 2023 frá KR. Hún hefur spilað 22 leiki fyrir liðið.

FRÉTTIR09.01.2026, 18:07

Amanda til Molde (Staðfest) - „Komin heim"

Amanda Andradóttir er gengin til liðs við norska félagið Molde en hún skrifar undir þriggja ára samning. Hún rifti samningi sínum við Twente í síðasta mánuði. Amanda er 22 ára gömul en hún fæddist í Molde. Hún var til viðtals á heimasíðu Molde eftir undirskriftina.

FRÉTTIR09.01.2026, 17:20

Bræður sameinast í Keflavík (Staðfest)

Keflavík hefur samið við Halid Alghoul fyrir komandi tímabil í Bestu deildinni. Halid er 23 ára gamall kantmaður og ólst upp hjá króatíska félaginu Dinamo Zagreb. Hann á leiki í efstu deildinni í Króatíu en hann lék síðast með NK Jarun Zagreb

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.