ÍBV hefur tilkynnt um ráðningu á Aleksandar Linta. ÍBV hafnaði í níunda sæti Bestu deildarinnar á síðasta tímabili en Þorlákur Árnason lét óvænt af störfum í vetur.
Fótbolti.net heimsótti Linta til Serbíu 2022 og Hafliði Breiðfjörð tók við hann ítarlegt viðtal.
Fótbolti.net heimsótti Linta til Serbíu 2022 og Hafliði Breiðfjörð tók við hann ítarlegt viðtal.
Tilkynning ÍBV:
Serbneski þjálfarinn Aleksandar Linta hefur skrifað undir þriggja ára samning við ÍBV. Hann mun verða aðalþjálfari meistaraflokks karla hjá félaginu.
Linta sem er 50 ára á langan leikmannaferil á Íslandi þar sem hann lék í öllum fjórum deildum landsins á sínum tíma sem leikmaður frá árinu 1997 til 2013. Flesta leikina lék hann í 1. deild en þá einnig þrjú tímabil í efstu deild með ÍA og Þór.
Hann hóf þjálfaraferil sinn á Grundarfirði árið 2012 en hann var þjálfari þar í tvö ár. Hann var aðstoðarþjálfari hjá slóvenska félaginu NK Olimpija Ljubljana og einnig aðalþjálfari þar í stuttan tíma 2018 þar sem Olimpija komst örugglega áfram í undankeppni Evrópudeildarinnar.
Leið Linta lá síðan til Kasakstan þar sem hann var aðstoðarþjálfari hjá fimmföldum landsmeisturum FC Irtysh Pavlodar, eftir það fékk hann starf sem aðalþjálfari hjá FK Radnicki 1923 en þar var hann frá 2020 til 2021. Árið 2021 tók hann við FK Vozdovac en nú yfirgefur hann starf í unglingaliðum hjá Rauðu Stjörnunni til að taka við ÍBV.
Knattspyrnuráð býður Aleksandar velkominn til félagsins og hlakkar til samstarfsins.
Athugasemdir



