FRÉTTIR09.01.2026, 17:20
Keflavík hefur samið við Halid Alghoul fyrir komandi tímabil í Bestu deildinni.
Halid er 23 ára gamall kantmaður og ólst upp hjá króatíska félaginu Dinamo Zagreb. Hann á leiki í efstu deildinni í Króatíu en hann lék síðast með NK Jarun Zagreb
FRÉTTIR09.01.2026, 16:34
Kristrún Ýr Holm er gengin í raðir Þrottar og mun spila með liðinu á komandi tímabili í Bestu deildinni. Hún kemur til Þróttar frá Keflavík þar sem hún hefur leikið allan sinn feril.
Fótbolti.net sagði frá því í gær að Kristrún væri á leið í Þrótt. Hún er annar leikmaðurinn sem Þróttur fær í vetur, en áður hafði Björg Gunnlaugsdóttir komið frá FHL.
FRÉTTIR09.01.2026, 16:06
Jón Guðni Fjóluson hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari Breiðabliks. Hann mun aðstoða Ólaf Inga Skúlason með meistaraflokk karla. Eiður Benedikt Eiríksson og Arnór Sveinn Aðalsteinsson voru aðstoðarþjálfarar á liðnu tímabili, Eiður flutti til Akureyrar í haust og samdi við Þór og Arnór Sveinn hætti eftir tímabilið.
Jón Guðni, sem er 36 ára, er fyrrum atvinnu- og landsliðsmaður sem lagði skóna á hilluna fyrir tæpu ári síðan. Hann er uppalinn hjá Ægi og kom í 3. flokki í Fram. Eftir tímabilið 2011 með Fram hélt hann út í atvinnumennsku og var erlendis í rúman áratug; lék Belgíu, Svíþjóð, Rússlandi og í Noregi. Hann lék 18 leiki í íslensku landsliðstreyjunni.
Hann er með UEFA A-þjálfaragráðu og kemur til Breiðabliks eftir að hafa þjálfað yngri flokka hjá HK og stígur nú sín fyrstu skref í meistaraflokksþjálfun.
FRÉTTIR09.01.2026, 13:27
Jeppe Pedersen hefur skrifað undir tveggja ára samning við KA. Hann kemur til félagsins frá Vestra þar sem hann spilaði í eitt og hálft tímabil. Fótbolti.net sagði frá áhuga KA á leikmanninum í upphafi vikunnar.
Jeppe er 24 ára danskur miðjumaður sem skoraði sigurmark Vestra í úrslitaleik Mjólkurbikarsins í ágúst. Markið var einkar glæsilegt þrumuskot fyrir utan vítateig. Markið tryggði Vestra fyrsta bikarmeistaratitilinn í sögu félagsins.
Jeppe er annar leikmaðurinn sem KA fær frá Vestra í vetur því Diego Montiel gekk í raðir KA í lok nóvember. Hann var orðaður við Þór og Val fyrir áramót.
FRÉTTIR09.01.2026, 11:38
Miðvörðurinn Felix Mathaus Lima Santos hefur gert samning við Njarðvík um að leika með liðinu út árið 2026. Felix hefur spilað æfingaleiki með Njarðvík á undirbúningstímabilinu og skoraði tvennu gegn FH og eitt gegn KR. Í fréttum úr þeim leikjum var hann titlaður sem Felix Hjaltason.
Hann spilaði síðast í Grikklandi, í næstefstu deild.
Hann er 35 ára gamall, er frá Grænhöfðaeyjum og er einnig með portúgalskt vegabréf. Hann er annar reynslumikli miðvörðurinn sem Lengjudeildarliðið hefur fengið í vetur því Eiður Aron Sigurbjörnsson samdi við félagið í nóvember.
FRÉTTIR09.01.2026, 10:40
Kristófer Máni Sigurðsson hefur skrifað undir samning við Þór en hann kemur til félagsins frá uppeldisfélaginu Hetti.
Hann er fæddur árið 2008 en hefur þrátt fyrir ungan aldur spilað 32 meistaraflokksleiki undanfarin tvö ár.
Kristófer Máni er þriðji leikmaðurinn sem Þór, sem vann Lengjudeildina í fyrra, hefur fengið til sín í vetur. Í síðasta mánuði sömdu þeir Ágúst Eðvald Hlynsson og Atli Sigurjónsson við félagið.
FRÉTTIR09.01.2026, 09:15
Antoine Semenyo hefur skrifað undir samning við Manchester City til 2031. Ganverski kantmaðurinn kemur frá Bournemouth.
Hann hefur leikið frábærlega á tímabilinu en sagði við undirskriftina að hann ætti enn eftir að toppa sig á ferlinum og spila enn betur.
Semenyo er 26 ára en City kaupir hann á 65 milljónir punda, sem var riftunarákvæði í samningi hans.
FRÉTTIR09.01.2026, 07:00
Jón Björgvin Jónsson er genginn í raðir Víkings Ólafsvíkur frá Stjörnunni, en hann gerir tveggja ára samninga við Ólsara.
FRÉTTIR08.01.2026, 21:24
Afturelding hefur nælt sér í öflugan markvörð fyrir komandi tímabil en Kristján Hjörvar Sigurkarlsson er kominn til félagsins frá Kára á Akranesi.
FRÉTTIR08.01.2026, 17:15
Birta Georgsdóttir er gengin í raðir ítalska félagsins Genoa en hún kemur þangað frá Íslands- og bikarmeisturum Breiðabliks. Fótbolti.net greindi frá áhuga Genoa á Birtu fyrr í þessari viku.
Birta, sem er 23 ára gamall sóknarmaður, var besti leikmaður Íslandsmótsins í sumar og hefur alls unnið fjóra stóra titla hjá Breiðabliki á fimm tímabilum í Smáranum. Hún kom að 25 mörkum á liðnu tímabili.
FRÉTTIR08.01.2026, 16:17
Júlíus Mar Júlíusson hefur verið keyptur til norska félagsins Kristiansund frá KR. Júlíus mun því leika í norsku úrvalsdeildinni á komandi tímabili. Júlíus heldur til Noregs í næstu viku.
Hann er 21 árs miðvörður sem keyptur var til KR fyrir rúmu ári frá uppeldisfélaginu Fjölni. Hann spilaði alls 25 leiki fyrir KR og var varafyrirliði liðsins. Hann lék 16 leiki í Bestu deildinni á liðnu tímabili og bar fyrirliðabandið í nokkrum þeirra.
Hann er U21 landsliðsmaður, hefur spilað þrjá leiki fyrir U19 og þrjá fyrir U21.
FRÉTTIR08.01.2026, 14:36
Kristinn Ásgeir Þorbergsson er genginn í raðir Ægis en hann kemur frá nágrönnunum í Árborg.
Hann á að baki meistaraflokksleiki með KFR, Hamri, Selfossi og Árborg. Hann er 22 ára sóknarmaður sem hefur skorað 70 mörk í 142 KSÍ leikjum. Hann skoraði 17 mörk í 18. leikjum i 4. deidinni síðasta sumar. Hann endaði sem næstmarkahæsti leikmaður deildarinnar á eftir Bjarka Sigurjónssyni í KÁ.
Hann er annar leikmaðurinn sem Ægir, sem er nýliði í Lengjudeildinni, krækir í þennan veturinn. Markús Máni Jónsson kom frá Víði Garði milli jóla og nýárs.
FRÉTTIR08.01.2026, 12:12
Andrea Rut Bjarnadóttir hefur gengið til liðs við Anderlecht í Belgíu frá Íslandsmeisturum Breiðabliks.
Hún var kynnt sem leikmaður liðsins fyrir skömmu. Hún mun klæðast treyju númer sjö hjá félaginu.
<i>„Þegar þetta tækifæri kom upp var ákvörðunin auðveld. Anderlecht er lið á hæsta stigi og það er nákvæmlega þar sem ég vil vera sem leikmaður,“</i> er haft eftir Andreu í tilkynningu félagsins.
Hjá Anderlecht mun hún endurnýja kynnin við gamla liðsfélaga sinn hjá Breiðabliki, Vigdísi Lilju Kristjánsdóttur. Liðið er sem stendur í öðru sæti belgísku úrvalsdeildarinnar, tveimur stigum á eftir Leuven.
FRÉTTIR07.01.2026, 19:53
Arnaud Kalimuendo er genginn til liðs við Frankfurt á láni frá Nottingham Forest.
Það er kaupmöguleiki í samningnum en þýska félagið getur keypt hann fyrir 23,5 milljónir punda.
FRÉTTIR07.01.2026, 16:06
Fyrrum atvinnu- og landsliðsmaðurinn Alfreð Finnbogason hefur verið ráðinn sem yfirmaður fótboltamála hjá norska félaginu Rosenborg.
Hann kemur til félagsins eftir að hafa starfað hjá Breiðabliki í um eitt og hálft ár sem tæknilegur ráðgjafi. Samningur hans við Rosenborg mun gilda til ársins 2030.
FRÉTTIR07.01.2026, 11:26
Ólafur Kristjánsson og Lúðvík Gunnarsson munu stýra U21 landsliðinu í þeim leikjum sem eftir eru í yfirstandandi undankeppni. KSÍ hefur ákveðið að nota bráðabirgðalausn með starfsmönnum innanhúss.
Ólafur er aðstoðarþjálfari kvennalandsliðsins og Lúðvík hefur verið aðstoðarmaður U21 landsliðsins og þjálfari U17.
Ólafur Ingi Skúlason lét af störfum á liðnu ári sem U21 landsliðsþjálfari til að taka við Breiðablki. Íslenska liðið er í fjórða sæti af sex liðum þegar undankeppnin er hálfnuð en næstu leikir eru í mars.
Leikirnir í mars skarast á við verkefni hjá U17 og mun Ómar Ingi Guðmundsson, þjálfari U15, stýra U17 liðinu í fjarveru Lúðvíks í því verkefni.
FRÉTTIR06.01.2026, 22:30
FC Twente er búið að staðfesta ráðningu á Hollendingnum Erik ten Hag sem tæknilegum stjóra félagsins.
FRÉTTIR06.01.2026, 21:20
Sameinað lið Grindavíkur og Njarðvíkur er búið að krækja sér í bandarískan markvörð sem kemur úr röðum Tampa Bay Sun. Sú heitir Lauren Kellett og verður 24 ára gömul í febrúar.
FRÉTTIR06.01.2026, 19:46
Jonny Evans er kominn aftur til Manchester United sem partur af þjálfarateymi Darren Fletcher.
FRÉTTIR06.01.2026, 10:51
Englendingurinn Liam Rosenior er tekinn við sem stjóri Chelsea. Hann skrifar undir samning til ársins 2032.
Rosenior tekur við af Ítalanum Enzo Maresca sem lét af störfum á nýársdag. Rosenior kemur til Chelsea frá Strasbourg en félagið er í eigu BlueCo líkt og Chelsea.