Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24391 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR10.12.2025, 14:24

Darri Bergmann í Stjörnuna (Staðfest)

Markmaðurinn Darri Bergmann Gylfason er genginn í raðir Stjörnunnar en hann kemur til félagsins frá Augnabliki. Hann hefur verið aðalmarkmaður Augnabliks í fjögur tímabil og á að baki 108 KSÍ leiki. Darri Bergmann gerir þriggja ára samning og fylgir Hrannari Boga Jónssyni, nýjum aðstoðarþjálfara Stjörnunnar, úr Kópavoginum en Darri lék undir stjórn Hrannars Boga hjá Augnabliki. Stjarnan lánaði á dögunum markmanninn Aron Dag Birnuson til Þróttar og Darri er svo tilkynntur í kjölfarið. Honum er væntanlega ætlað að veita Árna Snæ Ólafssyni samkeppni um stöðu í liðinu.

FRÉTTIR10.12.2025, 13:33

Stolt Fanndís leggur skóna á hilluna (Staðfest) - „Tek frelsinu fagnandi"

Fanndís Friðriksdóttir hefur lagt skóna á hilluna en hún greinir frá ákvörðun sinni á <i>Instagram</I>. Fanndís, sem er 35 ára, var sóknarsinnaður leikmaður sem þreytti frumraun sína í meistaraflokki fyrir 20 árum. Hún er fædd á Akureyri en lék í yngri flokkum með ÍBV áður en hún fór í Breiðablik í 2. flokki. <i>„Takk fyrir mig fòtbolti. Sigrar-Töp og allt það en það sem situr eftir er allt fólkið. Þakklát og stolt af ferlinum. Tek frelsinu fagnandi,"</I> skrifar Fanndís. Hún lék 32 leiki fyrir yngri landsliðin og skoraði í þeim tólf mörk. Hún er líka ein af einungis þrettán leikmönnum Íslands sem hafa spilað yfir 100 landsleiki, en alls á Fanndís að baki 110 A-landsleiki og skoraði í þeim 17 mörk. Hún fór á EM með landsliðinu árin 2009, 2013 og 2017. Á EM í Hollandi 2017 skoraði hún eina mark Íslands á mótinu þegar hún kom Íslandi yfir gegn Sviss. 110. leikurinn kom í sumar en þá hafði hún ekki spilað með landsliðinu í fimm ár.

FRÉTTIR09.12.2025, 16:06

Tryggvi Snær endurnýjar kynnin við Venna (Staðfest)

Tryggvi Snær Geirsson er genginn í raðir Þróttar en hann kemur til félagsins eftir sex tímabil með Fram. Miðjumaðurinn á að baki 131 leik í meistaraflokki og hefur í þeim skorað níu mörk. Hann kom einungis við sögu í átta leikjum með Fram í sumar eftir að hafa spilað 20 leiki tímabilið 2024. Hann er uppalinn hjá KR og lék einn leik með KR í efstu deild 2018 og lék svo með KV sumarið 2019 áður en hann hélt í Fram. Þjálfari KV á þeim tíma var Sigurvin Ólafsson, Venni, en hann er í dag þjálfari Þróttar. Hann kom við sögu í 16 leikjum og skoraði tvö mörk þegar lið Fram fór ósigrað upp úr Lengjudeildinni 2021.

FRÉTTIR08.12.2025, 19:48

Jónatan Ingi hjá Val næstu fjögur árin (Staðfest)

Jónatan Ingi Jónsson er búinn að framlengja samning sinn við Val um tvö ár, sem þýðir að hann gildir nú út tímabilið 2029. Tíðindin koma nokkuð á óvart en hann hefur verið orðaður við bæði KR og Víking síðustu vikur.

FRÉTTIR05.12.2025, 21:57

Dagur Ingi kominn aftur til Keflavíkur (Staðfest)

Dagur Ingi Valsson er genginn til liðs við Keflavíkur og skrifar undir tveggja ára samning. Hann kemur til liðsins frá KA. Hann er 26 ára gamall sóknarsinnaður miðjumaður sem er uppalinn hjá Leikni Fáskrúðsfirði. Hann er kominn aftur til Keflavíkur en hann spilaði þar frá 2019 áður en hann gekk til liðs við KA undir lok sumargluggans í fyrra.

FRÉTTIR05.12.2025, 19:37

Árni Elvar snýr heim í Leikni (Staðfest)

Árni Elvar Árnason er genginn aftur til liðs við Leikni en hann kemur frá Fjölni. Hann kemur til með að vera leikmaður liðsins ásamt því að vera aðstoðarþjálfari 2. flokks. Árni Elvar er fæddur árið 1996 og er uppalinn í Leikni. Hann gekk til liðs við Þór í fyrra og spilaði með liðinu í Lengjudeildinni. Hann færði sig til Fjölnis fyrir síðasta tímabil og spilaði 10 leiki þegar liðið féll úr Lengjudeildinni.

FRÉTTIR05.12.2025, 10:37

Jörgen frá Eyjum til Flórída (Staðfest)

Norðmaðurinn Jörgen Pettersen er genginn í raðir bandaríska félagsins Sarasota Paradise eftir að hafa spilað með ÍBV á síðasta tímabili. Það var hans fimmta tímabil á Íslandi en áður hafði hann spilað tvö tímabil með ÍR og tvö með Þrótti. Meiðsli settu strik í reikninginn hjá miðjumanninum sem kom einungis við sögu í tíu leikjum í deild og bikar.

FRÉTTIR04.12.2025, 13:43

Þróttur kaupir Adam Árna (Staðfest)

Adam Árni Róbertsson hefur verið keyptur til Reykjavíkur Þróttara frá Grindavík. Hann hefur leikið með Njarðvík, Keflavík, Þrótti Vogum og Grindavík á sínum meistaraflokksferli. Framherjinn er 26 ára og kemur til Þróttar eftir að hafa skorað fjórtán mörk í Lengjudeildinni með Grindavík á síðasta tímbili. <i>„Framherjinn Adam Árni hefur skrifað undir samning við Þrótt en hann kemur til félagsins frá Grindavík þar sem hann hefur spilað síðustu tvö tímabil við góðann orðstír en hann gerði 14 mörk í 19 leikjum á síðasta tímabili,"</I> segir í tilkynningu Þróttar. Hann er annar leikmaðurinn sem Þróttur fær í vetur. Þróttur fékk markmanninn Aron Dag Birnuson á láni frá Stjörnunni um síðustu helgi. Þróttarar eru greinilega stórhuga, ætla sér stóra hluti í Lengjudeildinni næsta sumar.

FRÉTTIR04.12.2025, 06:00

Nancy tekinn við Celtic (Staðfest) - Fyrsti leikurinn er stórleikur

Celtic hefur staðfest að Wilfried Nancy er tekinn við liðinu af Martin O'Neil. Hann skrifar undir tveggja og hálfs árs samning. Nancy kemur til Celtic frá bandaríska félaginu Columbus Crew en hann vann tvo titla við stjórnvölin hjá félaginu. Þá var hann þjálfari ársins í fyrra.

FRÉTTIR03.12.2025, 22:37

Láki segir upp störfum hjá ÍBV (Staðfest)

ÍBV tilkynnti rétt í þessu að Þorlákur Árnason hefur sagt upp störfum hjá félaginu. Þetta kemur gríðarlega á óvart en hann tók við liðinu í fyrra af Hermanni Hreiðarssyni sem stýrði liðinu til sigurs í Lengjudeildinni.

FRÉTTIR03.12.2025, 13:25

Murielle Tiernan í Stjörnuna (Staðfest) - „Vænti mikils af henni"

Murielle Tiernan er gengin í raðir Stjörnunnar en bandaríski markahrókurinn kemur til félagsins frá Fram. Fótbolti.net greindi frá yfirvofandi skiptum á föstudag og voru þau tilkynnt í dag. Murielle, sem er þrítug, var markahæsti leikmaður Fram á síðasta tímabili, skoraði ellefu mörk í 21 leik í Bestu deildinni. Hún var líka markahæsti leikmaður liðsins 2024 þegar liðið fór upp úr Lengjudeildinni. Hún lék hjá Fram undir stjórn Óskars Smára Haraldssonar sem tók við liði Stjörnunnar í síðasta mánuði. Þau unnu einnig saman hjá Tindastóli tímabilið 2021.

FRÉTTIR02.12.2025, 15:07

Heiða Ragney til Eskilstuna (Staðfest)

Miðjumaðurinn Heiða Ragney Viðarsdóttir hefur yfirgefið Íslands- og bikarmeistara Breiðabliks og gert tveggja ára samning við sænska félagið Eskilstuna United.

FRÉTTIR02.12.2025, 12:30

Tveir erlendir leikmenn áfram hjá Fram (Staðfest)

Þær Emma Kate Young og Ashley Brown Orkus hafa skrifað undir áframhaldandi samninga við Fram og verða með liðinu í Bestu deildinni á komandi tímabili. Emma er hafsent, fædd 2000, sem kom til Grindavíkur fyrir tímabilið 2024. Hún skipti svo til Filippseyja eftir síðasta tímabil en sneri aftur í Fram í sumar og spilaði níu síðustu leikina. Hún þekkir vel til Antons Inga Rúnarssonar, þjálfara Fram, en þau unnu saman hjá Grindavík.

FRÉTTIR02.12.2025, 10:14

Arnar Breki skrifar undir þriggja ára samning í Eyjum (Staðfest)

Arnar Breki Gunnarsson hefur skrifað undir nýjan samning við ÍBV en fyrri samningur hans við félagið rann út í síðasta mánuði. Hann er nú samningsbundinn til næstu þriggja ára. Arnar Breki er uppalinn Eyjamaður sem getur bæði spilað í fremstu línu og á kantinum. Hann er 23 ára og að baki 140 KSÍ leiki, alla fyrir ÍBV eða venslaliðið KFS. Í þeim hefur hann skorað 18 mörk. Á liðnu tímabili kom hann við sögu í 21 leik og lagði samkvæmt <i>Fotmob</i> upp tvö mörk.

FRÉTTIR01.12.2025, 21:19

Siggi Raggi ráðinn þjálfari NSÍ í Færeyjum (Staðfest) - Tilkynnt á afmælisdaginn

Sigurður Ragnar Eyjólfsson hefur verið ráðinn þjálfari færeyska liðsins NSÍ Runavík. Félagið tilkynnti þetta í kvöld á 52 ára afmælisdegi Sigga. Hann skrifar undir eins árs samning. NSÍ hafnaði í 3. sæti færeysku deildarinnar á síðustu leiktíð en Daniel Obbekjær og Klæmint Olsen, fyrrum leikmenn Breiðabliks, og Brandur Olsen, fyrrum leikmaður FH, eru á mála hjá félaginu.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.