Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24391 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR21.11.2025, 16:00

Sesar Örn í ÍBV (Staðfest)

Sesar Örn Harðarson er genginn í raðir ÍBV en hann kemur frá grönnunum í Selfossi. Sesar er 19 ára sóknarmaður sem skrifar undir tveggja ára samning við ÍBV. ÍBV endaði í 9. sæti Bestu deildarinnar á tímabilinu en Selfoss endaði í 11. sæti Lengjudeildarinnar og féll niður í 2. deild.

FRÉTTIR21.11.2025, 14:30

Víkingur fær einn efnilegasta leikmann Lengjudeildarinnar (Staðfest)

Elísa Birta Káradóttir er gengin í raðir Víkings en hún kemur frá uppeldisfélaginu HK. Samningur hennar við HK rennur út um mánaðamótin. Elísa Birta er fædd árið 2009 og er gríðarlega efnileg. Þrátt fyrir ungan aldur var tímabilið í sumar hennar annað tímabil með meistaraflokki. Hún skoraði þrjú mörk í sextán leikjum í Lengjudeildinni í sumar.

FRÉTTIR20.11.2025, 22:48

Svavar Örn í HK (Staðfest)

Gunnar Heiðar Þorvaldsson, nýr þjálfari HK, hefur sótt hægri bakvörðinn Svavar Örn Þórðarson frá sínum gömlu félögum í Njarðvík. HK-ingar tilkynntu komu Svavars í kvöld.

FRÉTTIR20.11.2025, 12:43

Baldur Logi í Keflavík (Staðfest)

Baldur Logi Guðlaugsson er genginn í raðir Keflavíkur en hann kemur frá Stjörnunni. Hann skrifar undir tveggja ára samning með möguleika á eins árs framlengingu. Baldur Logi er 23 ára og á að baki 90 leiki í efstu deild. Hann er uppalinn hjá FH en hefur síðustu þrjú tímabil leikið með Stjörnunni. Hann er miðjumaður en getur leyst margar stður á vellinum. Keflavík endaði í 5. sæti Lengjudeildarinnar í sumar en fór í umspilið og vann það og verður því í Bestu deildinni á næsta tímabili.

FRÉTTIR20.11.2025, 10:16

Thelma Karen til Hacken (Staðfest)

Thelma Karen Pálmadóttir, leikmaður FH, hefur verið seld til sænska félagsins Hacken. Félagið greindi frá tíðindunum í morgunsárið.

Thelma er fædd árið 2008 og var kjörinn efnilegasti leikmaður Bestu-deildar kvenna á afstöðnu tímabili. Í kjölfar frábærs tímabils var hún kölluð upp í A-landsliðið og spilaði sinn fyrsta landsleik í síðasta mánuði.

FRÉTTIR19.11.2025, 16:50

Stubbur framlengir við KA (Staðfest)

Steinþór Már Auðunsson, Stubbur, hefur skrifað undir nýjan samning við KA. Hans fyrri samningur var að renna út en nú er hann samningsbundinn út næsta tímabil. Hann var í haust orðaður við Magna, en hann ætlar að taka slaginn áfram með KA. Stubbur er 35 ára uppalinn KA-maður, hann varð fyrst aðalmarkmaður liðsins 2021 og svo aftur síðustu tvö tímabil. Tímabilin 2022 og 2023 var hann í samkeppni við Kristijan Jajalo. Hann hjálpaði KA að vinna Mjólkurbikarinn 2024, átti mjög góðan leik grgn Víkingi í bikarúrslitunum.

FRÉTTIR19.11.2025, 13:22

ÍBV fær leikmann frá KÍ Klaksvík (Staðfest)

ÍBV tilkynnti rétt í þessu að Færeyingurinn Ari í Haraldsstovu Petersen, væri genginn í raðir félagsins á lánssamningi frá KÍ Klaksvík. Ari Petersen er 22 ára markvörður sem lék alla leiki færeyska U21 landsliðsins í síðustu undankeppni fyrir EM. Á þessu tímabili lék hann með 07 Vestur í færeysku úrvalsdeildinni, lék alla leiki liðsins og var fyrirliði liðsins. Hann kemur til ÍBV sem vantaði markmann í samkeppni við Marcel Zapytowski eftir að Hjörvar Daði Arnarsson ákvað að vera ekki áfram í Eyjum.

FRÉTTIR19.11.2025, 11:25

Frans tekur sextánda tímabilið með Keflavík (Staðfest)

Frans Elvarsson, fyrirliði Keflavíkur, hefur skrifað undir nýjan eins árs samning við Keflavík. Hann hjálpaði liðinu að komast upp úr Lengjudeildinni í sumar og mun taka slaginn með því í Bestu deildinni næsta sumar. Keflavík endaði í 5. sæti Lengjudeildarinnar og fór upp úr deildinni með því að vinna umspilið. Næsta tímabil verður hans sextánda með Keflavík, en Hornfirðingurinn kom frá grönnunum í Njarðvík í sumarglugganum 2011.

FRÉTTIR19.11.2025, 11:10

Aron Fannar heim í Fjölni (Staðfest)

Aron Fannar Hreinsson er genginn í raðir Fjölnis, hann er uppalinn hjá félaginu og kemur frá Ægi. Hann skoraði þrjú mörk í tólf leikjum með Ægi í sumar og hjálpaði liðinu að vinna 2. deild. Hann tekur slaginn með Fjölni sem verður í 2. deild í sumar eftir að hafa fallið úr Lengjudeildinni í sumar.

FRÉTTIR18.11.2025, 12:51

Árni Snær áfram hjá Stjörnunni (Staðfest)

Árni Snær Ólafsson hefur framlengt samning sinn við Stjörnuna út næsta tímabil. Árni, sem er fæddur 1991, var samningslaus eftir tímabilið.

Nokkur óvissa var með framtíð Árna en mörg félög úr Bestu deildinni höfðu áhuga á því að fá Árna í sínar raðir. Meðal liða sem voru nefnd eru: Víkingur, KR, ÍA og FH.

FRÉTTIR18.11.2025, 12:08

Clement tekinn við Norwich (Staðfest)

Belginn Philippe Clement hefur verið ráðinn sem nýr stjóri Norwich. Félagið tilkynnti frá tíðindunum fyrir skömmu og segir þar að Clement hafi skrifað undir samning til ársins 2029.

Liam Manning hafði stýrði liðinu í upphafi tímabils en var látinn taka poka sinn í upphafi landsliðsgluggans fyrir rúmri viku. Norwich er í næst neðsta sæti Championship deildarinnar með aðeins 9 stig eftir fimmtán leiki.

Norwich vann síðast leik undir lok ágústmánaðar. Alls eru það ellefu leikir í röð sem liðið hefur ekki tekist að vinna, þar af hefur Norwich tapað átta sinnum.

FRÉTTIR17.11.2025, 15:15

Kemur frá Klaksvík og tekur við Tindastóli (Staðfest)

Svanberg Óskarsson hefur verið ráðinn til Tindastóls, hann er tekinn við sem þjálfari kvennaliðs félagsins. Hann tekur við liðinu af Donna sem var áðinn þjálfari U19 ára landsliðs kvenna í síðasta mánuði. Svanberg er fæddur árið 1997 og er á KSÍ skráður í KR. Hann kemur frá KÍ Klaksvík í Færeyjum þar sem hann þjálfaði unglingalið karla og var í þjálfarateymi meistaraflokks kvenna. Þar áður var hann hjá Fortuna Hjörring í Danmörku. Tindastóll féll úr Bestu deildinni í haust og verður í Lengjudeildinni á næsta tímabili.

FRÉTTIR16.11.2025, 20:13

Jökull í FH (Staðfest)

Jökull Andrésson er genginn í raðir FH en hann kemur til félagsins frá Aftureldingu. Markmaðurinn skrifar undir samning sem gildir út 2028. Jökull rifti samningi sínum við Aftureldingu í síðustu viku og á föstudag var tilkynnt að Mathias Rosenörn, aðalmarkmaður FH á síðasta tímabili, yrði ekki áfram. FH hafði áhuga á því að fá Jökul fyrir síðasta tímabil en þá samdi hann við Aftureldingu. Jökull er 24 ára og er uppalinn hjá Aftureldingu en fór ungur að árum til Reading. Hann sneri aftur í Mosó 2024 og varði mark liðsins í öllum 27 leikjunum í Bestu deildinni í sumar.

FRÉTTIR16.11.2025, 14:44

Steven Caulker yfirgefur Stjörnuna (Staðfest)

Stjarnan hefur komist að samkomulagi við enska varnarmanninn Steven Caulker um að rifta samningi hans við félagið, bæði sem leikmaður og þjálfari, en þetta kemur fram í tilkynningu Stjörnumanna í dag.

FRÉTTIR16.11.2025, 11:46

Jordon Ibe til Búlgaríu (Staðfest)

Jordon Ibe, fyrrum vonarstjarna Liverpool, er búinn að skipta um félag. Hann er kominn til Búlgaríu þar sem hann mun leika fyrir Lokomotiv Sofia.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.