FRÉTTIR07.11.2025, 16:30
Jonathan Glenn hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokks kvenna á Selfossi og gerir hann tveggja ára samning við félagið. Hann tekur við starfinu af Gunnari Borgþórssyni sem hætti eftir síðastliðið tímabil.
FRÉTTIR07.11.2025, 14:25
Paolo Vanoli hefur verið ráðinn nýr stjóri Fiorentina. Þessi fyrrum stjóri Torino fer beint með Fiorentina í fallbaráttuslag gegn Genoa klukkan 14 á sunnudaginn.
Albert Guðmundsson leikur fyrir Fiorentina sem er í neðsta sæti með aðeins tveimur stigum minna en Genoa. Albert er kominn aftur til Flórens eftir að hafa verið á Íslandi í vikunni og hann verður með í komandi leik.
Eftir það heldur Albert svo til Aserbaísjan þar sem Ísland mætir heimamönnum í undankeppni HM.
FRÉTTIR07.11.2025, 11:02
Þjálfarinn Gunnar Heiðar Þorvaldsson hefur skrifað undir þriggja ára samning við HK. Fótbolti.net greindi frá því fyrir viku síðan að það stefndi í að Gunnar Heiðar yrði ráðinn til félagsins.
Gunnar Heiðar kemur til félagsins eftir að hafa stýrt Njarðvík í tvö og hálft tímabil. Hann tekur við starfinu af Hermanni Hreiðarssyni sem var ráðinn til Vals á dögunum.
Aðstoðarþjálfarinn Arnar Freyr Smárason og styrktarþjálfarinn Sigurður Már Birnisson fylgja Gunnari Heiðari frá Njarðvík.
FRÉTTIR07.11.2025, 09:46
Sóknarmaðurinn Berglind Björg Þorvaldsdóttir hefur framlengt samning sinn við Íslands- og bikarmeistara Breiðabliks.
Berglind kom til Breiðabliks fyrir síðasta tímabil og átti frábæra endurkomu í grænu treyjunni. Liðið landaði báðum stóru titlunum og Berglind var markahæsti leikmaður Íslandsmótsins með 23 mörk.
Markafjöldi Berglindar gerði það að verkum, að hún er nú orðin markahæsti leikmaðurinn í sögu kvennaliðs Breiðabliks, með 202 mörk.
<i>„Við vonumst eftir enn fleiri mörkum frá Berglindi á komandi ári. Til hamingju með samninginn, Berglind Björg,"</i> segir í yfirlýsingu Breiðabliks.
FRÉTTIR06.11.2025, 21:11
Magnús Már Einarsson, þjálfari Aftureldingar og Enes Cogic, aðstoðarþjálfari liðsins, hafa skrifað undir nýjan samning sem gildir út tímabilið 2028.
Magnús er Aftureldingarmaður í húð og hár en hann spilaði upp yngri flokkana með liðinu og var í sex ár í meistaraflokki.
FRÉTTIR06.11.2025, 16:09
Daniel De Rossi er tekinn við Genoa en íslenski landsliðsmaðurinn Mikael Egill Ellertsson leikur fyrir félagið. Genoa er þriðja liðið sem De Rossi stýrir eftir að hann lagði leikmannaskóna á hilluna.
Hann stýrði SPAL í B-deildinni og svo Roma í A-deildinni en þar er hann algjör goðsögn eftir leikmannaferilinn. Hann var frábær miðjumaður og var í heimsmeistaraliði Ítalíu 2006.
FRÉTTIR06.11.2025, 15:47
<p>Ajax hefur rekið þjálfarann John Heitinga. Tap liðsins gegn Galatasary í Meistaradeildinni í gær virðist hafa gert útslagið en félagið tilkynnti brottreksturinn fyrir skömmu. </p><p>Heitinga tók við liðinu í upphafi sumars. Þar áður var hann aðstoðarmaður Arne Slot hjá Liverpool og var í teyminu þegar Liverpool vann ensku deildina á síðasta tímabili.</p>
FRÉTTIR06.11.2025, 14:50
ÍA tilkynnti í dag um breytingar á leikmannahópi félagsins. Fimm leikmenn félagsins kveðja. Það eru þeir Arnleifur Hjörleifsson, Árni Salvar Heimisson, Guðfinnur Þór Leósson, Hlynur Sævar Jónsson og Kristófer Áki Hlinason.
Hlynur Sævar er 26 ára varnarmaður sem kom við sögu í 21 deildarleik með ÍA á tímabilinu. Hann var samningsbundinn ÍA út næsta tímabil. Guðfinnur er 26 ára miðjumaður sem kom við sögu í níu deildarleikjum með ÍA á tímabilinu. Samningur hans gildir til 16. nóvember.
Arnleifur er 25 ára vinstri bakvörður sem lék á láni hjá Njarðvík í Lengjudeildinni á liðnu tímabili. Hann var samningsbundinn út næsta tímabil. Árni Salvar er 22 ára hægri bakvörður sem lék á láni með Grindavík í Lengjudeildinni á liðnu tímabili. Samningur hans gildir til 16. nóvember.
Í lok síðasta mánaðar tilkynnti Víkingur Ólafsvík að Kristófer Áki yrði áfram hjá félaginu en hann var þar á láni frá ÍA. Hann er 21 árs vinstri bakvörður.
FRÉTTIR05.11.2025, 21:14
Linda Líf Boama hefur skrifað undir hjá Kristianstad í Svíþjóð. Linda Líf, sem er fædd árið 2001, skoraði átta mörk í 20 leikjum fyrir Víking í Bestu deildinni í sumar.
Nik Chamberlain, sem stýrt hefur Breiðabliki, er að taka við Kristianstad.
FRÉTTIR05.11.2025, 18:05
Davíð Smári Lamude hefur verið kynntur sem nýr þjálfari Njarðvíkur. Viðtal við Davíð verður birt hér á Fótbolta.net í kvöld.
Davíð, sem stýrði Vestra til bikarmeistaratitilsins í sumar, skrifaði undir samning við Njarðvíkinga út tímabilið 2027.
FRÉTTIR05.11.2025, 17:14
Íslandsmeistarar Breiðabliks í kvennaflokki hafa tilkynnt um ráðningu á Ian Jeffs sem nýjum þjálfara.
FRÉTTIR05.11.2025, 06:00
Tryggvi Snær Geirsson hefur yfirgefið Fram en hann var að klára sjötta tímabilið hjá félaginu.
Hann lék 133 leiki með liðinu og skoraði tíu mörk. Hann gekk til liðs við Fram frá KR fyrir tímabilið 2020.
FRÉTTIR04.11.2025, 17:11
Natasha Anasi-Erlingsson er gengin í raðir Grindavíkur/Njarðvíkur, hún var tilkynnt á fréttamannafundi sem nýr leikmaður félagsins í dag. Natasha skrifar undir eins árs samning við Grindavík/Njarðvík sem endaði í 2. sæti Lengjudeildarinnar í ár og verður í Bestu deildinni á næsta tímabili.
Natasha er 34 ára og lenti í því óláni að slíta krossband í ágúst og verður því frá fram á næsta ár.
Hún býr yfir mikilli reynslu, spilaði fyrst á Íslandi um mitt sumar 2014 og á að baki rúmlega 150 deildarleiki á Íslandi. Hún lék með ÍBV, Keflavík og Breiðabliki áður en kallið kom frá Noregi þar sem hún samdi við Brann. Þar glímdi hún við erfið meiðsli og sneri svo til Vals í sumarglugganum 2024.
FRÉTTIR04.11.2025, 11:04
<p>Fiorentina hefur látið ítalska þjálfarann Stefano Pioli fara. Liðið er án sigurs í ítölsku deildinni eftir tíu leiki og situr nú í 19. sæti deildarinnar með fjögur stig, sem er versta byrjun í sögu liðsins. </p><p>Liðið tapaði gegn Lecce um helgina en eftir tapið gaf félagið út yfirlýsingu þar sem greint var frá því að enginn fulltrúi félagsins væri til tals við fjölmiðla eftir leikinn.</p>
FRÉTTIR04.11.2025, 06:00
Karlotta Björk Andradóttir er gengin til liðs við HK frá Stjörnunni. Hún var á láni í Kópavogi síðasta sumar og skoraði fimm mörk í 14 leikjum fyrir HK. Liðið hafnaði í 3. sæti deildarinnar.
Karlotta er fædd árið 2007 og er uppalin hjá Þór. Hún spilaði fimm leiki með Þór/KA í Bestu deildinni sumarið 2023 og einnig sex leiki með Álftanesi í 2. deild sama sumar.
FRÉTTIR03.11.2025, 10:30
Kimberley Dóra Hjálmarsdóttir er gengin í raðir Vals en hún kemur til félagsins á frjálsri sölu frá Þór/KA. Kimberley er fædd árið 2005 og var valin besti leikmaður Þórs/KA á lokahófi félagsins.
Hún skrifar undir tveggja ára samning á Hlíðarenda, en fleiri félög vildu fá hana í sínar raðir.
<i>„Þrátt fyrir að vera aðeins tvítug hefur Kimberley þegar fest sig í sessi sem einn kraftmesti miðjumaður Bestu deildarinnar,"</I> segir í tilkynningu Vals.
Kimberley Dóra hefur leikið 18 landsleiki fyrir yngri landslið Íslands og bætti við 19. landsleiknum fyrir U23 landsliðið í júní þegar hún lék gegn Skotlandi.
FRÉTTIR02.11.2025, 22:13
Southampton er búið að reka Will Still úr þjálfarastöðu félagsins eftir hrikalega byrjun á tímabilinu í ensku Championship deildinni.
FRÉTTIR02.11.2025, 18:20
Valur er búinn að staðfesta ráðningu á Hermanni Hreiðarssyni sem nýjum aðalþjálfara meistaraflokks karla. Hann tekur við af Srdjan Tufegdzic sem var rekinn á dögunum.
FRÉTTIR02.11.2025, 12:00
Vitor Pereira hefur verið rekinn sem stjóri Wolves eftir slæmt gengi á tímabilinu.
Liðið tapaði gegn Fulham í gær og er aðeins með tvö stig á botni úrvalsdeildarinnar eftir tíu umferðir. Þá er liðið úr leik í deildabikarnum eftir tap gegn Chelsea í 16-liða úrslitum.
Stuðningsmenn liðsins hafa sungið 'þú verður rekinn á morgun,' undanfarið sem hefur ekki farið vel í Pereira en hann gagnrýndi þá eftir 3-2 tap liðsins gegn Burnley um síðustu helgi.
FRÉTTIR01.11.2025, 19:06
Reynir Sandgerði er búið að ráða Tommy Fredsgaard Nielsen sem þjálfara meistaraflokks karla fyrir næsta tímabil.