Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fös 03. júlí 2020 14:38
Magnús Már Einarsson
Pepsi Max-deild kvenna lýkur viku síðar - Leikdagar klárir
Breiðablik og KR eiga frestaða leiki í júlí og ágúst.
Breiðablik og KR eiga frestaða leiki í júlí og ágúst.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KSÍ hefur birt á vef sínum nýja leikjaniðurröðun í Pepsi Max-deild kvenna eftir að leikjum hjá Breiðabliki, Fylki og KR var frestað þar sem leikmenn liðanna eru í sóttkví.

Leikir þessara liða sem áttu að vera í 4. umferð fara fram 24. júlí næstkomandi.

5. umferð hefst í næstu viku með tveimur leikjum en leikir Breiðabliks, Fylkis og KR í umferðinni fara fram 19. ágúst.

Fleiri umferðir hafa færst til og meðal annars verða 8-liða úrslit í Mjólkurbikarnum nú í júlí en ekki ágúst.

Þá mun lokaumferðin fara fram laugardaginn 17. október en ekki sunnudaginn 11. október eins og fyrirhugað var. Næstsíðasta umferðin fer fram 11. október.

Smelltu hér til að sjá leikjaplanið
Athugasemdir
banner
banner