Fotbolti.net
01.10.26 - 09:04
Elvar Geir Magnússon

City eigi að fara í D-deildina og missa titlana

Frá Etihad, heimavelli Manchester City.

Frá Etihad, heimavelli Manchester City.

Canon

Mynd: EPA

Fjölmiðlamenn og sérfræðingar keppast við að segja sína skoðun á því hvaða refsingu Manchester City eigi að fá eftir að félagið var fundið sekt um fjölmörg alvarleg brot á fjárhagsreglum.

Oliver Holt, yfirmaður íþróttadeildar Daily Mail, telur að City eigi að vera dæmt niður í neðstu deild, vera svipt titlum og tekið úr höndum núverandi eigenda.
Úrvalsdeildarfélögin vilja að Man City sé refsað sem fyrst
TENGT EFNI

Úrvalsdeildarfélögin vilja að Man City sé refsað sem fyrst

„Eins og hjá mjörgum er mín afstaða að vera harðari og harðari eftir því sem fleiri nýjar upplýsingar koma fram. Þær sýna hversu mikið forskot City fékk," segir Holt.

„Þær undirstrika einnig hversu erfitt það var fyrir þá sem fylgdu reglunum að keppa við City. Ef áfrýjun City mistekst ætti að reka félagið úr úrvalsdeildinni og láta þá byrja upp á nýtt í D-deildinni."

„Í grunninn er ég ekki hrifinn af hugmyndinni um að svipta félag titlum sem það hefur unnið, en ég sé engan annan kost í þessu tilfelli. Gallinn við þessar refsingar er sá að aðdáendurnir, sem eru saklausir í öllu þessu, verða fórnarlömb."

„Eigendurnir ættu líka að taka skellinn. Þeir mega ekki vera áfram vera eigendur frábærs félags sem þeir hafa dregið svo mikið niður í svaðið."
City eigi að fara í D-deildina og missa titlana
Canon

Mynd: Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.