Fotbolti.net
06.02.21 - 06:00
Magnús Már Einarsson

Brynjólfur Willums spáir í leiki helgarinnar á Englandi

Brynjólfur Darri Willumsson

Brynjólfur Darri Willumsson

Canon

Mynd: Hulda Margrét

Kristján Óli Sigurðsson var með fjóra rétta þegar hann spáði í leiki vikunnar í ensku úrvalsdeildinni.

Brynjólfur Andersen Willumsson spáir í leiki helgarinnar en hann var í eldlínunni með Breiðabliki í gær og skoraði þrennu í úrslitaleik Fótbolta.net mótsins.


Aston Villa 2 - 1 Arsenal (12:30 á morgun)
Þetta verður jafn leikur en Oooo the Stebbi-Grealish klárar þennan leik með mark og assist.

Newcastle 1 - 1 Southampton (15:00 á morgun)
Þetta verður frekar daufur leikur og litið að frétta. Bæði mörkin koma eftir fast leikatriði.

Burnley 1 - 2 Brighton (15:00 á morgun)
Jói Berg teiknar einn beint á kollinn á Woodaranun en það mun ekki duga. Yves Bissouma setur winnerinn og klárar þennan leik.

Fulham 3 - 0 West Ham (17:30 á morgun)
Jlingz verður á eldi og biður uppá veislu þrenna og tekur fræga tiktok dice roll þegar hann fagnar þriðja markinu.

Manchester United 1 - 2 Everton (20:00 á morgun)
Manu saddir eftir 9-0 sigur og Gylfi setur tvennu en Pogboom kemur inná sem varamaður og minnkar muninn.

Tottenham 1 - 1 West Brom (12:00 á sunnudag)
Tottenham voru alveg vonlausir gegn Chelsea í síðasta leik og með ekkert leikplan. Þeir verða í veseni og fá jöfnunarmark á sig á 90 frá Semi Ajayi.

Wolves 2 - 1 Leicester City (14:00 á sunnudag)
Adama Traore mun loksins komast í gang í þessum leik. Leggur upp tvö mörk og Wolves ná í 3 sterka punkta.

Liverpool 1 - 2 Manchester City (16:30 á sunnudag)
Firmino verður næstbesti maður vallarins og skorar eitt en City eru alltof góðir þessa dagana og Gabríel Jesus setur 2 mörk og verður með show.

Sheffield United 0 - 3 Chelsea (19:15 á sunnudag)
Tiki taka Tuchel boltinn labbar yfir Sheffield. Ég ætla að biðja fólk um að fylgjast með Kovacic og Jorginho stjórna þessari miðju. Giroud skorar eitt.

Leeds 3 - 3 Crystal Palace (20:00 á mánudag)
Þetta verður einn veislu hrár og hraður leikur end to end bolti og nóg af mörkum. Eze og Zaha sjá um mörkin fyrir Crystal Palace og ætli fyrrverandi Chelsea maðurinn bamford sjái ekki um markaskorun Leeds.

Fyrri spámenn
Tómas Þór Þórðarson - 8 réttir
Haukur Harðarson - 7 réttir
Siggi Bond - 7 réttir
Auðunn Blöndal - 6 réttir (Einn frestaður)
Bjarni Þór Viðarsson - 6 réttir
Björn Bragi Arnarsson - 6 réttir
Sóli Hólm - 6 réttir
Gummi Ben - 5 réttir
Logi Bergmann Eiðsson - 5 réttir
Sara Björk Gunnarsdóttir - 5 réttir
Sölvi Tryggvason - 5 réttir
Elísa Viðarsdóttir - 4 réttir
Þorlákur Árnason - 4 réttir
Gunnar Birgisson - 4 réttir
Kristján Óli Sigurðsson - 4 réttir
Bára Kristbjörg Rúnarsdóttir - 3 réttir (einn frestaður)
Birkir Már Sævarsson - 3 réttir
Herra Hnetusmjör - 3 réttir
Ingibjörg Sigurðardóttir - 3 réttir
Steindi Jr. - 3 réttir
Villi í Steve Dagskrá - 3 réttir
Gabriel Jesus verður í stuði í toppslagnum samkvæmt spá Brynjólfs.

Gabriel Jesus verður í stuði í toppslagnum samkvæmt spá Brynjólfs.

Canon

Mynd: Getty Images

Olivier Giroud verður á skotskónum ef spáin rætist.

Olivier Giroud verður á skotskónum ef spáin rætist.

Canon

Mynd: Getty Images

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Arsenal38+4485
2Manchester City38+4278
3Manchester Utd38+1971
4Aston Villa38+765
5Liverpool38+1060
6Bournemouth38+457
7Sunderland38-654
8Brighton38+653
9Brentford38+353
10Chelsea38+652
11Fulham38-452
12Newcastle38-249
13Everton38-349
14Leeds38-747
15Crystal Palace38-1045
16Nott. Forest38-344
17Tottenham38-941
18West Ham38-1939
19Burnley38-3722
20Wolves38-4120
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.