Þrátt fyrir að engir fótboltaleikir séu spilaðir um þessar mundir þá er hægt að njóta fótbolta með öðrum hætti. FourFourTwo tók saman lista yfir bestu kvikmyndir og heimildarþætti um fótbolta.
Átt þú ábendingar um fleiri skemmtilegar fótboltamyndir? Láttu heyra í þér í ummælakerfinu.
Átt þú ábendingar um fleiri skemmtilegar fótboltamyndir? Láttu heyra í þér í ummælakerfinu.
20. ESCAPE TO VICTORY (1981) - Ein furðulegasta hugmynd að kvikmynd sem hægt er að finna. Sylvester Stallone er hetjan gegn þýsku landsliði og leikið er í París en borgin er hernumin af nasistum. Michael Caine, Pele, Bobby Moore og Ossie Ardiles leika líka í myndinni!
19. THE DAMNED UNITED (2009) - Leikin mynd sem hlaut lof gagnrýnenda. Fjallar um dagana 44 sem Brian Clough stýrði Leeds.
18. MEANWHILE BACK IN SUNDERLAND - Heimildarmynd um áhrifin sem óvæntur sigur Sunderland í FA-bikarnum 1973 hafði. (Hægt að finna á Youtube)
17. SHAOLIN SOCCER (2001) - Gerast kvikmyndir svalari? Bráðskemmtileg kínversk mynd um fótboltamenn sem búa yfir ofurkröftum! Ímyndunaraflinu gefið lausan tauminn.
16. BEND IT LIKE BECKHAM (2002) - Mynd á léttu nótunum um Jess Bhamra sem sigrast á mótlæti og lætur fótboltadrauma sína rætast.
15. HILLSBOROUGH - BBC heimildarmynd þar sem rætt er við þá sem lifðu af Hillsborough slysið og við fjölskyldur þeirra sem týndu lífi. Fjallað er um hvernig hægt hefði verið að koma í veg fyrir slysið. (Hægt að finna á Youtube)
14. THERE'S ONLY ONE JIMMY GRIMBLE (2000) - Afskaplega bresk mynd sem fjallar um ungan dreng og hans fótboltadrauma. Þeir rætast þgar hann fær skó með töframætti.
13. NORTH KOREA - THE GAME OF THEIR LIVES - Norður-Kórea kom öllum á óvart á HM 1966 þar sem liðið lagði Ítalíu og komst í 3-0 gegn Portúgal. Mögnuð mynd um fótboltalandslið þessarar sérstöku þjóðar. (Hægt að finna á Youtube)
12. BUSBY, STEIN AND SHANKLY: THE FOOTBALL MEN (1997) - Heimildarmynd í þremur hlutum um þrjá magnaða skoska knattspyrnustjóra sem allir fæddust á sama svæðinu. (Hægt að finna á Youtube)
11. ORIENT: CLUB FOR A FIVER (1995) - Hrá heimildarmynd þar sem fylgst er með John Sitton, stjóra Orient. Hann lætur sína menn aldeilis heyra það í hálfleik þegar þeir eru 3-0 undir gegn Brentford! (Hægt að finna á Youtube)
10. FEVER PITCH (1997) - Lífið verður flókið þegar þú elskar eina konu en dýrkar ellefu karlmenn. Colin Firth leikur stuðningsmann Arsenal í þessari skemmtilegu mynd sem gerð var eftir bók Nick Hornby.
9. RONALDO - Cristiano gefur innsýn í líf sitt sem fótboltamaður og fjölskyldumaður. Ronaldo treystir fáum en heldur þeim sem hann elskar þétt að sér.
8. MIKE BASSETT: ENGLAND MANAGER (2001) - Það er erfitt að elska ekki þessa sprenghlægilegu gamanmynd um Mike Bassett sem óvænt er ráðinn landsliðsþjálfari Englands og lendir í ýmsum uppákomum.
7. SUNDERLAND 'TIL I DIE - Skylduáhorf fótboltamannsins! Myndavélin er fluga á vegg í ótrúlegu tímabili hjá Sunderland þar sem allt fer í vaskinn. Netflix.
6. LES BLEUS - Mynd sem er á Netflix og hefur ekki fengið það umtal sem hún á skilið. Fjallað er um hæðir og lægðir franska landsliðsins á 20 ára tímabili.
5. THE CLASS OF '92 - Ótrúlega vel heppnuð mynd um velgengni ary og Phil Neville, Ryan Giggs, Paul Scholes, Nicky Butt og David Beckham.
4. NEXT GOAL WINS - Árið 2001 tapaði Kyrrahafsþjóðin smáa Bandarísku- Samóaeyjar fótboltaleik með 31 marki gegn engu á móti Ástralíu. Í þessari mynd er fylgst með liðinu í undirbúningi fyrir undankeppni HM í Brasilíu 2014. Óhætt að mæla með þessari mynd.
3. I BELIEVE IN MIRACLES - Mynd sem fjallar um svakalega upprisu Nottingham Forest undir stjórn Brian Clough. Þvílíkt afrek.
2. AN IMPOSSIBLE JOB - Graham Taylor mistókst að koma Englandi á HM 1994. Kvikmyndatökulið fékk gríðarlega góðan aðgang að öllu því sem gekk á. (Hægt að finna á Youtube)
Athugasemdir