08.11.26 - 09:40
Brynjar Ingi Erluson
Kalla eftir brottrekstri fjölmiðlafulltrúa Fulham - „Er hann siðblindur?“

Rodrigo Muniz opnaði sig í viðtali við fjölmiðlafulltrúa Fulham

Mynd: Fulham

Fjölmiðlafulltrúi enska úrvalsdeildarfélagsins Fulham hefur sætt harðri gagnrýni á samfélagsmiðlum vegna viðtals sem hann tók við brasilíska framherjann Rodrigo Muniz eftir 1-1 jafntefli liðsins gegn Newcastle United í gær.
Muniz skoraði eina mark Fulham í leiknum, en hann sagðist þakklátur fyrir að fá tækifærið undir stjórn Alvaro Arbeloa og ætlar sér að nýta það til fulls.
Framherjinn opnaði sig um erfiðleika síðasta tímabils, sem reyndist honum sérstaklega þungt. Hann þurfti meðal annars að gangast undir aðgerð og á sama tíma missti eiginkona hans fóstur.
Hann sagði þetta hafa tekið mikið á sig andlega, en deildi jafnframt gleðifréttum. Eiginkona hans er aftur orðin ólétt og eiga þau því von á barni. Muniz sagðist þakklátur og að Guð hefði verið sér góður.
Þessi einlæga frásögn virtist hins vegar fara algjörlega fram hjá fjölmiðlafulltrúanum, sem hélt beint áfram í næstu spurningu um fótboltann án þess að bregðast við því sem Muniz hafði sagt.
Þetta fór illa í stuðningsmenn sem töldu viðbrögðin afar taktlaus og skorta alla samúð.
„Er spyrillinn siðblindur? Engin samúð,“ skrifaði einn notandi á X.
Annar tók enn dýpra í árinni.
„Rekið manninn sem tók þetta viðtal. Gaurinn sagði honum og öllum sem voru að horfa að hann hefði misst barn og spyrillinn segir bara: ‚Hey, höldum áfram að tala um fótbolta.‘ Hjartlaus bastarður.“
Hægt er að sjá viðtalið hér fyrir neðan.

Rodri's reaction. https://t.co/mJpgeQgbyq
— Fulham Football Club (@FulhamFC) November 7, 2026