Fotbolti.net
07.11.26 - 18:47
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Arteta: Madueke sýnir gott fordæmi fyrir hina

Arteta: Madueke sýnir gott fordæmi fyrir hina
Canon

Mynd: EPA

Mikel Arteta hrósaði Noni Madueke í hástert eftir 1-0 sigur Arsenal gegn Hull í dag.

Martin Ödegaard skoraði eina mark leiksins þegar hann fylgdi á eftir skoti frá Madueke sem Konstantinos Tzolakis varði út í teiginn.
Madueke var inn og út úr liðinu í upphafi tímabilsins en hefur spilað mjög vel í undanförnum leikjum.

„Þetta er frábært fordæmi fyrir klefann því hann var ekki að spila fyrir fyrsta landsleikjahléið og í stað þess að fara í frí fór hann til Portúgal til að hitta einhvern til að æfa sig og komast í betra form," sagði Arteta.

„Hann komst strax í góðan takt og er núna fullur sjálfstrausts, maður sér það. Hann er að prófa hluti, hlaupa framhjá mönnum, hafa áhrif á leiki með mörkum og stoðsendingum svo við erum mjög ánægðir."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.