Fotbolti.net
08.11.26 - 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Tap í síðasta leiknum hjá Degi og félögum - Messi í sögubækurnar

Tap í síðasta leiknum hjá Degi og félögum - Messi í sögubækurnar
Canon

Mynd: San Diego

Dagur Dan Þórhallsson var í byrjunarliði San Diego FC sem tapaði gegn Sporting Kansas City í síðustu umferð MLS deildarinnar í Bandaríkjunum í nótt.

Eina mark leiksins kom úr vítaspyrnu þegar um stundafjórðungur var til loka venjulegs leiktíma.
San Diego endar í 13. sæti með 38 stig úr 34 leikjum. Sporting er í 15. og neðsta sæti með 26 stig.

Lionel Messi spilaði allan leikinn þegar Inter Miami gerðii 3-3 jafntefli gegn Charlotte eftir að hafa verið þremur mörkum yfir í hálfleik. Messi komst ekki á blað en Luis Suarez og Rodrigo De Paul skoruðu.

Messi er hins vegar markakóngur deildarinnar annað árið í röð með 26 mörk, fjórum mörkum meira en Petar Musa, framherji Dallas. Messi vann markakóngstitilinn annað árið í röð en enginn annar leikmaður hefur gert það áður.

Inter Miami endar í 2. sæti með 60 stig, 17 stigum á eftir toppliði Nashville. Charlotte endaði í 5. sæti með 54 stig.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.