Fotbolti.net
07.11.26 - 23:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Sandra María ótrúlega svekkt - „Ekki boðleg framkoma"

Sandra María ótrúlega svekkt - „Ekki boðleg framkoma"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Eftir að hafa ígrundað það vandlega hefur Sandra María Jessen ákveðið að tjá sig um ákvörðunina að slíta samstarfi Þórs og KA. Hún skrifaði langan pistil á Facebook síðu sína.

Hún er leikmaður Köln í dag en ólst upp hjá Þór og spilaði lengi með Þór/KA. Hún var m.a. Íslandsmeistari með liðinu. Sandra er svekkt og þá er hún mjög ósátt með það hvernig staðið var að málunum.
„Ég ætla ekki að fela það að ég er ótrúlega svekkt og fyrir miklum vonbrigðum með þessa ákvörðun. Ekki eingöngu vegna þeirrar sterku tengingar sem ég hef við félagið og alls þess sem það hefur gefið mér í gegnum árin, heldur fyrst og fremst vegna þess að mér er innilega annt um framtíð kvennaknattspyrnunnar á Akureyri. Framtíð sem ég hef sjálf reynt að leggja mitt af mörkum til að byggja upp og styrkja. Og því meira sem ég hugsa um þessa ákvörðun, því erfiðara á ég með að sjá hvernig hún eigi að vera kvennaknattspyrnunni í bænum til framdráttar."

„Þór/KA er svo miklu meira en bara fótboltalið í mínum augum. Þetta er félag sem hefur verið byggt upp með ótrúlegri elju, metnaði og fórnfýsi í gegnum árin. Félag sem hefur skapað ómetanlegar minningar, alið af sér frábærar knattspyrnukonur, verið fyrirmynd fyrir ungar stelpur og sýnt að það er hægt að ná langt í fótbolta fyrir norðan. Ég er óendanlega stolt af því að hafa fengið að vera hluti af þeirri sögu og lagt mitt af mörkum til hennar."

„Einnig þykir mér sárt hvernig staðið var að hlutunum. Mér finnst það í raun ákveðin vanvirðing gagnvart því fólki sem hefur lagt hjarta sitt og sál í að byggja þetta félag upp og halda því gangandi í gegnum árin. Fólki sem hefur gefið ótal klukkustundir af tíma sínum, oft án þess að ætlast til nokkurs í staðinn, einfaldlega vegna þess að því er annt um félagið og framtíð þess. Að þessir aðilar fái ekki einu sinni að heyra af svo stórri ákvörðun áður en hún verður opinber, hvað þá að hafa eitthvað um hana að segja, finnst mér ótrúlega sorglegt. Að leikmenn þurfa að lesa um þetta á netinu eða vera spurður út í bæ um framtíð félagsins sem maður hefur lagt svo mikið í, án þess að vita sjálfur nokkurn skapaðan hlut, er að mínu mati ekki boðleg framkoma. Þarna hefði verið hægt að sýna miklu meiri virðingu og fagmennsku."

Ein af þeim ástæðum sem hafa verið nefndar fyrir breytingunum er að skapa fleiri tækifæri fyrir unga og efnilega leikmenn og sýna þeim að leiðin upp í meistaraflokk sé raunhæf. Sandra segist eiga erfitt með að losna við þá tilfinningu að heildarhagsmunir kvennafótboltans á Akureyri hafi ekki verið settir í fyrsta sæti við þessa ákvörðun og spyr sig hvort þetta hafi verið eina leiðin.

„Hefði ekki verið hægt að finna aðrar leiðir? Til dæmis með varaliði eða einhvers konar þróunarliði, líkt og Hamrarnir voru á sínum tíma, þar sem ungir leikmenn hefðu fengið tækifæri til að vaxa, þroskast og taka sín fyrstu skref í meistaraflokki án þess að fórna því sem hefur verið byggt upp?"

„Og hvað gerist svo ef KA-liðið nær góðum árangri og vinnur sig upp í Lengjudeildina? Verður markmiðið þá ekki eðlilega að styrkja liðið enn frekar og stefna hærra? Þá er hætt við að sú hugmynd að skapa fleiri tækifæri fyrir unga leikmenn fari að einhverju leyti út um þúfur. Samkeppnin um leikmenn, fjármagn og styrktaraðila eykst og þeir ungu leikmenn sem áttu að fá fleiri tækifæri gætu aftur lent aftar í röðinni. Mér finnst mikilvægt að spyrja hvort langtímaafleiðingar þessarar ákvörðunar hafi verið hugsaðar nægilega vel."

„Þór/KA hefur um árabil verið eitt allra sterkasta og árangursríkasta knattspyrnulið Norðurlands. Það hefur ekki gerst af sjálfu sér. Á bak við þann árangur liggur áralöng vinna, samheldni og skýr framtíðarsýn. Ég óttast að með því að skipta þessum krafti í tvennt séum við að veikja það sem við höfum byggt upp."

Sandra hefur áhyggjur af því hvaða áhrif þetta hefur á ungar stelpur á Akureyri.

„Og þá vaknar hjá mér sú spurning sem mér finnst hvað mikilvægust: Hvaða áhrif hefur þetta á framtíð ungra knattspyrnukvenna á Akureyri og Norðurlandi öllu? Ef við náum ekki lengur að halda úti liði sem getur keppt við þau bestu á landinu, hvað verður þá um okkar efnilegustu leikmenn? Munum við missa þær fyrr suður til þess að þær geti haldið áfram að þróast og spila á hæsta stigi?"

„Og hvað verður þá um fyrirmyndirnar fyrir ungu stelpurnar okkar? Þær sem geta í dag mætt á völlinn, horft á bestu knattspyrnukonur bæjarins spila og hugsað með sér: „Þarna ætla ég að vera einn daginn.“

„Það er svo ótrúlega dýrmætt að hafa sterkt lið í heimabænum sínum. Að geta alist upp með þann draum að spila á hæsta stigi fyrir félagið sitt, án þess að þurfa endilega að flytja í burtu til þess."

„Ég veit að þetta er ekki endilega sú framtíð sem bíður okkar. Ég vona svo sannarlega að áhyggjur mínar reynist óþarfar. En mér finnst þær raunverulegar og mér finnst við skulda framtíð kvennaknattspyrnunnar á Norðurlandi að hugsa lengra en bara til næstu ára."

Sandra María ótrúlega svekkt - „Ekki boðleg framkoma"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sandra María ótrúlega svekkt - „Ekki boðleg framkoma"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sandra María ótrúlega svekkt - „Ekki boðleg framkoma"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.