Lukasz Fabianski, markvörður West Ham, spilaði sinn síðasta landsleik fyrir Pólland í gær er liðið mætti San Marino.
Pólverjar voru í engum vandræðum með San Marino en liðið vann sannfærandi 5-0 sigur í undankeppni HM.
Þetta var kveðjuleikur Fabianski sem er 36 ára gamall og hefur leikið með landsliðinu frá árinu 2006.
Síðan þá hefur Fabianski spilað 57 landsleiki en hann mun nú alfarið einbeita sér að félagsferlinum með West Ham.
Fabianski hefur leikið með Arsenal, Swansea og West Ham undanfarin 14 ár á Englandi.
Athugasemdir