Fotbolti.net
01.10.26 - 14:00
Elvar Geir Magnússon

Smalling til Porto (Staðfest)

Chris Smalling á æfingu Porto.

Chris Smalling á æfingu Porto.

Canon

Mynd: Porto

Varnarmaðurinn Chris Smalling hefur skrifað undir samning við portúgalska félagið Porto. Hann hefur verið án félags síðan hann yfirgaf Al-Fayha í Sádi-Arabíu í sumar.

Smalling er 36 ára og var einnig orðaður við Rangers í Glasgow.

Hann hefur skrifað undir samning við Porto til loka tímabils. Porto hefur unnið alla sjö deildarleiki sína til þessa á tímabilinu og er þegar komið með fimm stiga forystu á Benfica.
Porto tapaði gegn Manchester City í sínum fyrsta Meistaradeildarleik.

Smalling er fyrrum leikmaður Manchester United þar sem hann vann fimm stóra titila, þar á meðal ensku úrvalsdeildina tvívegis. Þá vann hann Sambandsdeildina með Roma undir stjórn Jose Mourinho 2022.

Hann hefur leikið 31 landsleik fyrir England.

Smalling með Roma.

Smalling með Roma.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.