11.01.21 - 11:00
Elvar Geir Magnússon
Solskjær: Spenna í lofti en tímabilið er ekki hálfnað

Ole Gunnar Solskjær.

Mynd: Getty Images

Ole Gunnar Solskjær.

Mynd: Getty Images
Ole Gunnar Solskjær, stjóri Manchester United, er meðvitaður um hversu mikilvæg vika er framundan hjá liðinu.
United fer á topp ensku úrvalsdeildarinnar ef liðið forðast tap gegn Burnley á þriðjudaginn. Næsta sunnudag er svo komið að toppslag gegn Englandsmeisturum Liverpool.
United fer á topp ensku úrvalsdeildarinnar ef liðið forðast tap gegn Burnley á þriðjudaginn. Næsta sunnudag er svo komið að toppslag gegn Englandsmeisturum Liverpool.
United heur ekki verið eins nálægt Englandsmeistaratitlinum á þessu stigi tímabilsins síðan Sir Alex Ferguson kvaddi með Englandsmeistaratitli 2013.
Solskjær vill þó ekki keyra upp væntingarnar þó hann geri sér grein fyrir því að úrslitin í næstu tveimur leikjum gætu skipt miklu máli en ef illa fer gæti liðið farið út af sporinu.
„Það er spenna í lofti meðal stuðningsmanna okkar og það er ánægjulegt, þeir eru glaðir með stöðuna. En tímabilið er ekki hálfnað. Mín augu eru á leiknum á þriðjudag og svo munum við sjá hvar við stöndum eftir hann. Allir leikir í ensku úrvalsdeildinni eru áskorun," segir Solskjær.
„Enginn mun muna hvernig taflan leit út 12. janúar 2021. Við erum á góðu flugi, við viljum auðvitað að sjálfstraustið haldist svona."

Premier league - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Arsenal | 10 | +10 | 27 |
| 2 | Man City | 10 | +8 | 21 |
| 3 | Brighton | 9 | +17 | 19 |
| 4 | Chelsea | 9 | +4 | 16 |
| 5 | Everton | 10 | +2 | 16 |
| 6 | Liverpool | 9 | +2 | 15 |
| 7 | Brentford | 9 | +7 | 14 |
| 8 | Leeds | 10 | +2 | 14 |
| 9 | Bournemouth | 9 | +1 | 12 |
| 10 | Tottenham | 10 | -1 | 12 |
| 11 | Newcastle | 10 | -3 | 12 |
| 12 | Aston Villa | 9 | -3 | 12 |
| 13 | Hull City | 10 | 0 | 11 |
| 14 | Ipswich Town | 9 | -4 | 11 |
| 15 | Fulham | 10 | -2 | 10 |
| 16 | Nott. Forest | 10 | -4 | 9 |
| 17 | Coventry | 10 | -9 | 9 |
| 18 | Man Utd | 9 | -5 | 7 |
| 19 | Crystal Palace | 9 | -12 | 7 |
| 20 | Sunderland | 9 | -10 | 5 |