Fotbolti.net
11.12.12 - 08:00
Elvar Geir Magnússon
Í samstarfi við styrktaraðila

Lið vikunnar í enska - Rooney og Torres frammi

Fernando Torres er að fá sjálfstraustið aftur.

Fernando Torres er að fá sjálfstraustið aftur.

Canon

Mynd: Getty Images

Við höldum áfram að treysta Garth Crooks hjá BBC fyrir vali á úrvalsliði vikunnar í ensku úrvalsdeildinni. Úrslitin réðust á síðustu stundu í mörgum af leikjum helgarinnar.

Eftirminnilegast af þeim mörkum verður líklega sigurmark Robin van Persie í Manchester-slagnum. Norwich heldur áfram að gera gott mót svo einhverjir leikir séu nefndir.


Markvörður - Tim Howard, Everton
Nikica Jelavic fékk fyrirsagnirnar eftir sigurmark gegn Tottenham en Howard á ekki minni heiður af sigrinum.

Hægri bakvörður - Steven Whittaker, Norwich
Hefur heldur betur reynst Norwich vel síðan hann kom frá Rangers í Skotlandi. Skoraði sitt fyrsta mark fyrir Norwich um liðna helgi.

Miðvörður - Sebastien Bassong, Norwich
Hefur verið einn besti varnarmaður tímabilsins. Þó Norwich hafi fengið þrjú mörk á sig þá átti Bassong góðan leik, skoraði eitt af fjórum mörkum liðsins.

Miðvörður - Brede Hangeland, Fulham
Lundúnaliðið er ekki samt án Norðmannsins hávaxna. 1,46 stig að meðaltali með hann en 0,33 án hans. Lykilmaður með stóru L-i.

Vinstri bakvörður - Glen Johnson, Liverpool
Ekki bara valinn fyrir markið sem hann skoraði gegn West Ham. Átti frábæran leik á heildina litið.

Hægri kantur - Robert Snodgrass, Norwich
Skoraði sigurmarkið gegn Swansea.

Miðjumaður - Jack Wilshere, Arsenal
Verður betri með hverjum leiknum. Ef hann heldur áfram að vaxa svona eru það bara góðar fréttir fyrir enska landsliðið.

Miðjumaður - Mikel Arteta, Arsenal
Gerði það sem hann átti að gera og skilaði vítunum gegn West Brom í netið. Hefur skorað úr 12 af 14 vítum sem hann hefur tekið í ensku úrvalsdeildinni.

Vinstri kantur - Juan Mata, Chelsea
Gríðarlega skemmtilegur leikmaður. Leggur upp á félagana og vinnur eins og hestur.

Sóknarmaður - Wayne Rooney, Manchester United
Yngstur til að ná 150 úrvalsdeildarmörkum. Manchester City hafði enga stjórn á honum í fyrri hálfleik.

Sóknarmaður - Fernando Torres, Chelsea
Sjálfstraust hans er að koma aftur. Var frábær gegn Sunderland og skoraði tvö mörk.

Sjá einnig:
Fyrri úrvalslið í enska
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.