Fotbolti.net
07.07.26 - 17:00
Kári Snorrason
Jói útherji

Segja að Venezia bindi vonir um að geta fengið Orra

Skorað níu mörk í átján landsleikjum.

Skorað níu mörk í átján landsleikjum.

Canon

Mynd: EPA

Landsliðsfyrirliðinn Orri Steinn Óskarsson er sagður á blaði hjá ítölsku nýliðunum Venezia.

Ítalski miðillinn La Nuova Venezia greinir frá áhuga Venezia á Orra og danskir fjölmiðlar hafa tekið fréttina upp. Akor Adams, framherji Sevilla, er sagður vera fyrsti kostur og kemur Orri þar á eftir.
Orri hefur verið á mála hjá Real Sociedad í tvö ár. Hann hefur skorað 17 mörk í 62 leikjum fyrir félagið í öllum keppnum.

Hann var mikið meiddur á síðasta tímabili en náði engu að síður að skora níu mörk í La Liga.

Markahlutfall Orra vakti athygli á Spáni, en hann skoraði að meðaltali 0,98 mörk á hverjum 90 mínútum sem hann spilaði í deildinni og skákaði þar stórstjörnum á borð við Mbappe og Lamine Yamal.

Það verður að teljast ansi ólíklegt að Orri fari til Venezia en í staðarmiðli er sagt frá áhuga félagsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.