Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   fös 14. júní 2019 23:31
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
3. deild: KV styrkti stöðu sína á toppnum
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
KV styrkti stöðu sína á toppi 3. deildar karla með 2-1 útisigri gegn Skallagrími í kvöld.

Marteinn Theódórsson kom heimamönnum yfir á 20. mínútu og leiddi Skallagrímur alveg þangað til klukkutími var liðinn af leiknum. Þá jafnaði Einar Már Þórisson úr vítaspyrnu og bætti hann við öðru marki stuttu síðar.

Lokatölur 2-1 fyrir KV sem er á toppnum með 18 stig, fjórum stigum meira en Kórdrengir sem eiga leik til góða. Skallagrímur er í næst neðsta sæti með sex stig.

Það var einn annar leikur í kvöld og í honum unnu Vængir Júpiters 1-0 sigur gegn Álftanesi. Gunnar Orri Guðmundsson skoraði eina markið fyrir lærisveinar Tryggva Guðmundssonar á 17. mínútu.

Vængir Júpiters eru í fjórða sæti með 12 stig. Álftanes hefur átta stig í sjötta sæti.

Álftanes 0 - 1 Vængir Júpiters
0-1 Gunnar Orri Guðmundsson ('17)

Skallagrímur 1 - 2 KV
1-0 Marteinn Theódórsson ('20)
1-1 Einar Már Þórisson ('60, víti)
1-2 Einar Már Þórisson ('65)
markaskorarar af úrslit.net

Sjöunda umferðin í 3. deild heldur áfram á morgun og klárast á sunnudag.

laugardagur 15. júní
14:00 Einherji-Reynir S. (Vopnafjarðarvöllur)
14:00 Augnablik-Kórdrengir (Fagrilundur - gervigras)
16:00 KF-Höttur/Huginn (Ólafsfjarðarvöllur)

sunnudagur 16. júní
15:00 Sindri-KH (Sindravellir)
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner