Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 18. maí 2022 13:15
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sterkust í 4. umferð - Gerir tilkall í landsliðið
Ásta Eir Árnadóttir (Breiðablik)
Ásta Eir er leikmaður umferðarinnar.
Ásta Eir er leikmaður umferðarinnar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það er Steypustöðin sem færir þér leikmann umferðarinnar í Bestu deildinni. Að þessu sinni er það Ásta Eir Árnadóttir sem er leikmaður umferðarinnar.

Ásta Eir leikur sem hægri bakvörður í liði Breiðabliks og var hún besti maður vallarins í stórsigri gegn KR.

Sjá einnig:
Sterkasta lið 4. umferðar - Tvær sem léku sinn fyrsta leik

„Langt fram eftir leiknum snerist leikur Breiðabliks um blússandi sóknarleik og þær leituðu mikið með boltann út til hægri á Ástu sem átti hverja draumafyrirgjöfina á fætur annarri og skapaði mikla hættu fyrir framan mark KR," skrifaði Hafliði Breiðfjörð í skýrslu sinni frá leiknum um frammistöðu Ástu.

Ásta Eir er fyrirliði Blika og gríðarlega mikilvægur hluti af liðinu sem ætlar sér að berjast um Íslandsmeistaratitilinn í sumar.

„Auðvitað tekur tíma að púsla saman liðinu. Þetta tekur tíma, en þetta hefur gengið vel hingað til... mér finnst við vera á góðum stað núna," sagði Ásta í upphitun fyrir síðustu umferð á Stöð 2 Sport.

Gerir tilkall í landsliðið
Í sumar er Evrópumótið í Englandi og þar gerir Ásta klárlega tilkall til þess að vera í hópi Íslands. Hún kom inn í síðasta hóp og var með liðinu gegn Hvíta-Rússlandi og Tékklandi.

Ásta á að baki ellefu landsleiki fyrir Íslands hönd.

Sjá einnig:
Sterkust í 1. umferð - Ana Paula Santos Silva (Keflavík)
Sterkust í 2. umferð - Samantha Leshnak Murphy (Keflavík)
Sterkust í 3. umferð - Arna Eiríksdóttir (Þór/KA)
Athugasemdir
banner
banner
banner