Fotbolti.net
20.08.26 - 18:00
Víðir Sigurðsson

Víðir Sig: Tveir þjálfarar á undan Jóni

Jón Þór Hauksson stýrði Stjörnunni aðeins í níu leikjum í Bestu deildinni.

Jón Þór Hauksson stýrði Stjörnunni aðeins í níu leikjum í Bestu deildinni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jón Þór Hauksson stýrði Stjörnunni aðeins í níu leikjum í Bestu deild karla, frá því hann var ráðinn þjálfari Garðabæjarliðsins að loknum tíu leikjum liðsins í deildinni í vor, og þar til honum var sagt upp störfum í dag, níu umferðum síðar.

Hann var því við stjórnvölinn í aðeins rúmlega tvo og hálfan mánuð og er kominn í afar fámennan hóp þjálfara sem ekki hafa náð að ljúka tímabili með liði í deildinni eftir að hafa verið ráðnir til starfa eftir að það hófst. Leikirnir voru alls 13 talsins en Stjarnan lék fjóra Evrópuleiki undir hans stjórn.

Samkvæmt fréttum dagsins virðist stefna í að Brynjar Kristmundsson og Olgeir Sigurgeirsson, þjálfarar venslaliðsins KFG í 2. deildinni, stýri Stjörnuliðinu út þetta tímabil.

Tvívegis hefur það áður gerst í efstu deild karla hér á landi að þjálfari sem tekur við eftir að tímabil hefst hættir störfum áður en því lýkur - en þá eru undanskilin þau tilvik þar sem bráðabirgðaþjálfarar hafa komið og tekið við í stuttan tíma, sem mörg dæmi eru um.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.