Fotbolti.net
20.08.26 - 14:23
Kári Snorrason

Brynjar segir að hann og Olgeir stýri Stjörnunni út tímabilið

Brynjar Kristmundsson.

Brynjar Kristmundsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Brynjar Kristmundsson segir í samtali við Vísi að hann og Olgeir Sigurgeirsson muni stýra Stjörnunni út tímabilið. Hann segir að Hákon Ernir Haraldsson verði jafnframt áfram í þjálfarateyminu.

Stjarnan á enn eftir að staðfesta tíðindin en ekkert stóð um hver tæki við Stjörnunni er félagið tilkynnti um brottrekstur Jóns Þórs Haukssonar.
Jón Þór rekinn frá Stjörnunni (Staðfest)
TENGT EFNI

Jón Þór rekinn frá Stjörnunni (Staðfest)

Brynjar og Olgeir eru þjálfarar KFG, venslaliðs Stjörnunnar, en ásamt því voru þeir aðstoðarmenn Jóns Þórs.

Fótbolti.net náði ekki sambandi við Sæmund Friðjónsson, formann knattspyrnudeildar Stjörnunnar, vegna málsins. Þá vísaði Baldvin Sturluson, framkvæmdastjóri félagsins, á tilkynningu Stjörnunnar þegar Fótbolti.net leitaði eftir svörum.

Jón Þór stýrði Stjörnunni í 13 leikjum í deild og Evrópu. Fimm þeirra unnust, fimm töpuðust og jafnteflin urðu þrjú.

Næsti leikur Stjörnunnar er gegn Þór á sunnudaginn á Samsungvellinum.
Olgeir Sigurgeirsson.

Olgeir Sigurgeirsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Besta karla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.22+4653
2Fram22+1445
3KR22+2544
4Breiðablik22+230
5ÍA22-230
6Keflavík22-528
7Stjarnan22-828
8Valur22-627
9FH22-1221
10Þór22-2821
11KA22-1320
12ÍBV22-1318
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.