Fotbolti.net
20.08.26 - 18:03
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Fjórir markverðir í hóp Víkings

Pálmi Rafn, Aron Snær, Ögmundur og Uggi.

Pálmi Rafn, Aron Snær, Ögmundur og Uggi.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fjórir markverðir eru í leikmannahópi Víkings en liðið tekur á móti Borac Banja Luka í Sambandsdeildarumspilinu í kvöld. Leikurinn á Víkingsvelli hefst 18:15.

Aron Snær Friðriksson ver mark Víking í leiknum en þrír eru á bekknum. Það eru þeir Ögmundur Kristinsson, Uggi Jóhann Auðunsson og Pálmi Rafn Arinbjörnsson.
Pálmi Rafn hættur - „Tilfinningin að elska fótbolta kom aldrei"
TENGT EFNI

Pálmi Rafn hættur - „Tilfinningin að elska fótbolta kom aldrei"

Lestu um leikinn: Víkingur R. 0 - 0 FK Borac
Ögmundur og Aron Snær hafa barist um stöðuna í sumar en Ögmundur meiddist í upphitun fyrir leikinn gegn Thun fyrir tveimur vikum síðan og hefur ekki spilað síðan.

Uggi Jóhann hefur verið þeim til halds og trausts og er það áfram.

Pálmi Rafn Arinbjörnsson (2003) var í leikmannahópi Víkings í fyrra og spilaði talsvert af leikjum. Hann hins vegar ákvað að leggja markmannshanskana á hilluna eftir síðasta tímabil, en hefur æft með Víkingum síðustu daga. Þetta er í fyrsta sinn á tímabilinu sem Pálmi er í hóp.

„Hann fékk að koma á æfingu. Við vildum sjá hvernig standi hann er í. Ömmi meiddist og við erum einum meiðslum frá því að vera í markvarðarkrísu. Við vildum sjá hvar hann stendur og hverjir möguleikarnir eru ef við verðum fyrir fleiri áföllum með markmenn."

Hann er búinn að líta ágætlega út (á æfingum). Hann er búinn að halda sér við og er í flottu líkamlegu ástandi. Við þurfum að skoða betur hvernig standið á honum sem markvörður er,"
sagði Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, um Pálma Rafn fyrir átta dögum síðan.
Pálmi Rafn í upphitun fyrir leik.

Pálmi Rafn í upphitun fyrir leik.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aron Snær er í byrjunarliðinu.

Aron Snær er í byrjunarliðinu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.