Fotbolti.net
20.08.26 - 14:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Gaf Hinriki afarkosti - „Skellur að fá þessi skilaboð"

Skrifaði undir samning út árið 2028 hjá Egersund.

Skrifaði undir samning út árið 2028 hjá Egersund.

Canon

Mynd: Egersund

Hinrik Harðarson færði sig um set í Noregi á dögunum þegar Egersund keypti hann frá Odd hvar hann hafði verið í rúmt ár. Bæði lið spila í norsku B-deildinni, OBOS-ligaen.

Hinrik er sóknarmaður, fæddur 2004, sem var keyptur til Odd frá ÍA vorið 2025. Hann hafði leikið vel með ÍA í rétt rúmlega eitt tímabil áður en atvinnumennskan kallaði.

Á síðasta tímabili skoraði Hinrik þrjú mörk og lagði upp eitt í átta byrjunarliðsleikjum í deildinni og eitt mark í eina bikarleik liðsins. Á þessu tímabili byrjaði hann einungis einn leik af þeim tólf sem hann kom inn á í, skoraði tvö mörk og lagði upp eitt.
„Tilfinningin er mjög góð, ég hef mjög góða tilfinningu fyrir Egersund og fyrstu vikurnar hafa verið mjög fínar. Ég hef komist mjög vel inn í hópinn, þetta er lítill bær en virkar mjög kósí," segir Hinrik við Fótbolta.net.

Löppunum kippt undan Hinriki
„Aðdragandinn var þannig að eftir sumarfrí í deildinni kom ég á æfingu og mér er sagt að ég sé ekki að fara spila meira fyrir Odd. Þjálfarinn tilkynnti mér að ég vildi spila þá yrði ég að finna mér nýtt lið, ég væri ekki að fara spila mínútu í viðbót. Ég hafði byrjað síðasta leik fyrir fríið og skoraði í leiknum þar á undan. Það var smá skellur að fá þessi skilaboð, en þetta var bara staðan. Við fórum á fullt að reyna finna lausn á þessu, ég var með langan samning við Odd þannig ég var í ágætis stöðu. Ég fékk bara þessa kosti, löppunum var því svolítið kippt undan mér varðandi mína stöðu," segir Hinrik um aðdraganda skiptanna.

Odd varð að selja Hinrik til að fá inn fjármagn fyrir nýjum leikmanni þörf var á í liðið.

Fékk ekki aftur traustið
Hvernig gerir þú upp tímann hjá Odd?

„Hann var mjög mikið upp og niður. Ég kom rétt fyrir tímabilið í fyrra, var í geggjuðu standi og fær að spila til að byrja með. Síðan fór liðinu að ganga illa og þá var ég settur á bekkinn, kom inn á í leikjum og gerði ágætlega, en fékk, fannst mér, aldrei traustið sem ég hafði í byrjun."

„Það var ákveðin pressa á mér, við áttum að fara beint upp úr deildinni, en það gekk bara ekki nægilega vel. Það hefði kannski verið skynsamlegra fyrir mig og klúbbinn að koma aðeins rólegar inn í verkefnið, mér var mögulega hent aðeins of snemma inn í það hlutverk að vera framherji númer eitt."

„Það voru svo þjálfaraskipti í fyrra á miðju tímabili, þjálfarinn sem fékk mig var látinn fara og annar þjálfari (Per Frandsen) kom inn. Tækifærin voru ekki mikil eftir það og hann er þjálfari liðsins í dag."

„Þrátt fyrir að vera mjög mikið upp og niður tími, þá var þetta mjög lærdómsríkur tími. Ég lærði inn á það hvernig það er að vera atvinnumaður í fótbolta og hvernig þessi bransi virkar. Það er mikið af frábærum leikmönnum sem maður hefur lært af og æft með á hverjum einasta degi. Ég er orðinn miklu betri fótboltamaður og þekki mig miklu betur en fyrir ári síðan."

„Mér leið nokkuð vel í Skien, eignaðist fullt af vinum og leið mjög vel utan vallar. Það var erfitt að kveðja vinina sem ég var búinn að eignast, en á sama tíma var ég alveg tilbúinn til þess að fara á stað þar sem ég yrði metinn á ný. Það fannst mér vanta hjá Odd, þeir vissu ekki alveg hvað þeir ætluðu að gera við mig og ég vildi fara á stað þar sem ég væri metinn aftur."


Þetta bara gekk ekki upp
Hvernig skilgreiniru hlutverkið sem þú varst í og hvernig fannst þér það?

„Ég ræddi við þjálfara Odd fyrir tímabilið, ég var í því hlutverki að vera framherji númer tvö. Mér fannst það alveg í lagi. Ég fékk þau skilaboð ef að hinn framherjinn myndi dala frammistöðulega séð þá kæmi ég inn, en það gerðist ekki. Hlutverkið var því mjög lítið og vonbrigði eftir að hafa spilað nánast alla leiki á undirbúningstímabilinu og bjartsýnina sem því fylgdi. Þetta bara gekk ekki upp, þannig er boltinn."

„Klúbburinn Odd er úrvalsdeildarklúbbur. Það er kannski erfitt að koma í klúbb sem er nýbúinn að falla og ætlaði sér beint aftur upp og það gekk alls ekki upp í fyrra. Tímabilið í ár verið betra en samt ekki nægilega gott fyrir klúbbinn. Klúbburinn hefur ekki verið á frábærum stað, en hann er ótrúlega flottur og á klárlega heima í efstu deild. Ég hef lært helling og eftir þennan tíma hjá félaginu get ég ekki annað sagt en að ég sé orðinn betri leikmaður og meiri leiðtogi."


Hollt skref
Hvernig metur þú skrefið, sérðu það sem skref niður á við?

„Þetta skref til Egersund er held ég mjög hollt skref fyrir mig. Ég met þetta ekki sem skref niður á við varðandi gæði liðsins eða neitt svoleiðis. Egersund er töluvert minni klúbbur en Odd sem er stór klúbbur í Noregi. Egersund gerði hrikalega vel í að komast upp í OBOS deildina í fyrra og er að gera hrikalega vel í ár. Við erum sem dæmi bara þremur stigum á eftir Odd. Skrefið gæðalega séð er því bara á pari, en Odd er auðvitað mun stærra félag."

Aðeins hrárra hjá Egersund
Það eru um fimm tímar frá Skien til Egersund og því smá stúss sem fylgdi flutningunum, en ekkert sem Hinrik leysir ekki. Hann ræddi aðeins meira um muninn á félaginu og um deildina

„Þetta er aðeins hrárra hér en hjá Odd, menn þurfa að hafa aðeins meira fyrir hlutunum. Ég held að það sé eitthvað sem hentar mér. Hjá Odd ertu með liðsstjóra, sjúkraþjálfara, margir þjálfarar á æfingum og allt kemur einhvern veginn upp í hendurnar á manni. Hér þurfum við t.d. að keyra í ræktina fyrir æfingar, ekki rækt uppi á velli. Þetta er aðeins öðruvísi en gæðin eru mjög fín og hafa komið mér á óvart."

„Það er mikið af gæðamiklum leikmönnum í deildinni, eitthvað sem fólk áttar sig ekki alveg á. Það hefur komið mér á óvart hversu mikil gæði eru í deildinni og í raun í öllum liðum."


Þægilegri kosturinn hefði verið að fara til Íslands
Þú varst orðaður við heimkomu, heyrðist mest af áhuga fra Breiðabliki. Varstu nálægt því að fara til Íslands?

„Sem Íslendingur, þegar maður er ekki að spila mikið þá verða til sögusagnir um að maður sé á leiðinni heim, eða vilji koma heim. En það var ekki staðan, það var ekki planið mitt að fara heim á þessum tímapunkti. Ég vissi að ég ætti inni í þessari deild. Það hefði ekki verið neinn heimsendir að koma heim og spila fullt af leikjum, en mig langaði að vera áfram úti og líður vel í Noregi. Ef tilfinningin hefði verið þannig að ég teldi rétt að fara til Íslands, þá hefði ég gert það, en á þessum tímapunkti, og sérstaklega þegar Egersund kom upp þá fannst mér það mjög spennandi."

„Það hefði alveg getað þróast þannig að ég hefði þurft að koma heim, þ.e.a.s. ef ég hefði ekki fengið tækifæri á að halda áfram úti. En fyrst að ég fékk það tækifæri, þá var það númer eitt, tvö og þrjú á planinu. Ég sagði það líka við umboðsmanninn."

„Við vorum samt raunsæir, ég var ekki búinn að spila mikið af mínútum og lið hugsa með sér af hverju leikmaðurinn sé ekki að spila. Ef það hefði ekki komið neitt upp í útlöndum, þá hefði ég farið heim og allt í góðu með það. Ég sagði við Dóra umboðsmann að leggja niður hausinn og finna einhverja lausn úti. Við erum hrikalega sáttir með að það hafi gengið."

„Auðvitað er líka heillandi þegar stór lið á Íslandi vilja fá mann, en hausinn var þannig að ég vildi vera áfram í Noregi. Ég var í raun til í hvaða ævintýri á þessum tímapunkti á ferlinum og í lífinu. Ég vildi halda áfram að lifa drauminn að vera atvinnumaður í fótbolta í útlöndum. Það eru ekki allir sem fá tækifæri til að lifa þann draum og ég hugsaði að ég gæti alltaf, ef mig langaði það, farið heim og spilað á Íslandi. En það gæti verið erfitt að fara aftur út."

„Þægilegri kosturinn, meira kósí, hefði verið að fara heim í hlýjuna á Íslandi. Ég ákvað að taka ekki auðvelda kostinn."


Loksins kominn einhver sem jarðtengir Halla
Hjá Egersund hittir Hinrik fyrir Harald Árna Hróðmarsson. Halli, eins og hann er yfirleitt kallaður, þjálfaði Hinrik í yngri flokkum Þróttar og er í dag aðstoðarþjálfari Egersund.

Skiptir máli fyrir þig að hann sé hjá Egersund?

„Halli er náttúrulega bara frábær og fær þjálfari og hefur gert hrikalega vel. Ég hef þekkt hann í langan tíma og veit alveg hvað ég fæ frá honum. Auðvitað skiptir máli þegar þú ákveður að fara í nýjan klúbb, nýjan vinnustað, að þar sé gott fólk. Ég veit að Halli er geggjaður náungi og auðvitað skiptir máli að hann er hjá félaginu, það er mjög dýrmætt. Loksins kemur einhver á svæðið sem getur aðeins sett hann niður á jörðina, komið honum aftur á tærnar."

Marcel Zapytowski var keyptur frá ÍBV til Egersund um svipað leyti og Hinrik kom til félagsins. „Við erum orðnir góðir félagar þannig það er geggjað að hafa hann hérna líka," segir Hinrik.

Vill komast aftur í sitt besta flæði
Hvert er markmiðið hjá Egersund og þér?

„Ég sé restina af tímabilinu þannig að við erum í bullandi séns á að komast upp um deild. Það væri geggjaður árangur fyrir liðið."

„Persónulega er ég kominn til að spila fullt af mínútum. Það er markmiðið, ég vil ná að spila og ef ég spila þá er ég viss um að ég muni 100% skila mörkum og stoðsendingum fyrir liðið. Ég vil verða senter númer eitt og koma mér almennilega af stað. Mér líður rosalega vel í líkamanum og andlega. Ég vil komast aftur í það flæði sem ég veit að ég þrífst best í,"
segir Hinrik.

Hann hefur komið við sögu sem varamaður í fyrstu tveimur leikjunum eftir komuna til Egersund. Tólf umferðir eru eftir af deildinni, Egersund á næst bikarleik á laugardag og svo er leikur gegn Haugesund í deildinni. Þrjú stig eru fyrir Egersund upp í umspilssæti um sæti í efstu deild.
Hinrik er U21 landsliðsmaður, hefur ellefu leiki fyrir yngri landsliðin.

Hinrik er U21 landsliðsmaður, hefur ellefu leiki fyrir yngri landsliðin.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þetta er aðeins hrárra hér en hjá Odd, menn þurfa að hafa aðeins meira fyrir hlutunum. Ég held að það sé eitthvað sem hentar mér.

Þetta er aðeins hrárra hér en hjá Odd, menn þurfa að hafa aðeins meira fyrir hlutunum. Ég held að það sé eitthvað sem hentar mér.

Canon

Mynd: EIK

Skrefið gæðalega séð er því bara á pari, en Odd er auðvitað mun stærra félag

Skrefið gæðalega séð er því bara á pari, en Odd er auðvitað mun stærra félag

Canon

Mynd: Odd

Gaf Hinriki afarkosti - „Skellur að fá þessi skilaboð"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Halli Hróðmars er aðstoðarþjálfari Egersund.

Halli Hróðmars er aðstoðarþjálfari Egersund.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ég vildi halda áfram að lifa drauminn að vera atvinnumaður í fótbolta í útlöndum

Ég vildi halda áfram að lifa drauminn að vera atvinnumaður í fótbolta í útlöndum

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gaf Hinriki afarkosti - „Skellur að fá þessi skilaboð"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ég hef þekkt hann í langan tíma og veit alveg hvað ég fæ frá honum

Ég hef þekkt hann í langan tíma og veit alveg hvað ég fæ frá honum

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hjá Egersund er Marcel Zapytowski á milli stanganna en hann var fenginn frá ÍBV í glugganum.

Hjá Egersund er Marcel Zapytowski á milli stanganna en hann var fenginn frá ÍBV í glugganum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hinrik var orðaður við Breiðablik.

Hinrik var orðaður við Breiðablik.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gaf Hinriki afarkosti - „Skellur að fá þessi skilaboð"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.