20.08.26 - 11:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Útskýrir af hverju Víkingar ákváðu að færa leikinn gegn KR

Víkingar kusu að fá auka hvíld eftir seinni Evrópuleikinn.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sölvi Geir.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Víkingar kusu að fá auka hvíld eftir seinni Evrópuleikinn.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það vakti athygli í vikunni þegar ljóst varð að Víkingur myndi spila gegn Val á milli leikjanna gegn Borac Banja Luka í Sambandsdeildarumspilinu. Venjan hefur verið að íslensku liðin fái að fresta deildarleiknum á milli umspilsleikjanna en Víkingur ákvað frekar að fá að seinka leiknum eftir umspilið.
Í stað þess að spila við KR sunnudaginn 30. ágúst mun Víkingur því mæta KR-ingum þriðjudaginn 1. september. Það gefur Víkingum auka tvo daga til að jafna sig eftir ferðalagið frá Bosníu og Hersegóvínu.
Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, var spurður út í ákvörðunina í viðtali í gær.

TENGT EFNI
Víkingar spila í Bestu á milli Evrópuleikjanna en stórleikurinn gegn KR færður
„Það er fyrst og fremst út af ferðalaginu heim. Þetta er brútal ferðalag og sá leikur (eftir útileikinn gegn Borac) alltof nálægt. Sama þó að það hefði verið Valur sem hefði beðið okkar (eftir heimkomuna), þá er bara rosalega erfitt að ná að endurheimta eftir útileik á öðruvísi undirlagi í miklum hita og þetta ferðalag sem bíður okkar. Við mátum því að það væri betra að gera þetta svona," segir Sölvi.
Næstu leikir Víkings
fimmtudagur 20. ágúst
Sambandsdeildin
18:00 Víkingur R.-Borac (Víkingsvöllur)
sunnudagur 23. ágúst
Besta karla
19:15 Víkingur R.-Valur (Víkingsvöllur)
fimmtudagur 27. ágúst
Sambandsdeildin
18:30 Borac-Víkingur R. (Gradski Stadion Banja Luka)
þriðjudagur 1. september
Besta karla
17:15 KR-Víkingur R. (Meistaravellir)
sunnudagur 6. september
Besta karla
14:00 Víkingur R.-Fram (Víkingsvöllur)