20.08.26 - 12:00
Elvar Geir Magnússon
Flottustu og ljótustu treyjurnar - Varatreyjur Liverpool og Arsenal skora hátt

Mynd: Samsett

Mynd: Samsett
Nýtt tímabil í ensku úrvalsdeildinni fer af stað á morgun og Mirror ákvað að raða treyjum tímabilsins í röð eftir því hversu flottar þær eru. Horft er á aðal- og varatreyjur en ekki á þriðja búninginn sem oft er neonbleikur og aðallega gerður til að fá túrista til að taka upp veskið.
Þetta eru því alls 40 treyjur sem voru dæmdar og við skulum fara yfir niðurstöðuna. Byrjum á botninum og vinnum okkur svo upp.

Á botninum:

40. Newcastle - aðal
Dómnefnd Mirror er með aðaltreyju Newcastle á botninum og í umsögn er hún sögð óreiðukennd og minna á strikamerki. Mögulega sé um að ræða versta búning í allri ensku deildakeppninni.

39. Brighton - vara
Eins og sjúkrahúsbolir sem eru saumaðir saman í flýti fyrir lággjalda læknadramaþátt í sjónvarpinu

38. Bournemouth - vara
Líkist áklæðum á óþægilegum rútusætum.

37. Sunderland - vara
Temu útgáfa af Palermo treyjum.
36. Brighton - aðal
35. Crystal Palace - aðal
34. Crystal Palace - vara
33. Leeds - aðal
32. Fulham - aðal
31. Hull - aðal

30. Tottenham - vara
Lætur liðið líta út eins og það sé skoðað í gegnum botninn á bjórglasi á dimmri krá.

29. Chelsea - aðal
Konungsblái grunnurinn er fínn en gulllituð skreyting, ljón í stað merkis og risavaxið vatnsmerki sem leynist í bakgrunnsefninu er tilgangslaust.
28. Aston Villa - vara
27. Everton - vara
26. Ipswich - vara
25. Hull - vara
24. Bournemouth - aðal

23. Liverpool - aðal
Nálægt því að vera góð treyja en hvít krítarmerkin gefa henni útlit flugnaplágu.

22. Manchester City - aðal
Puma tekur enga áhættu og vekur enga raunverulega spennu.
21. Aston Villa - aðal
20. Chelsea - vara

19. Manchester United - aðal
Snyrtileg, fáguð og einföld treyja. Engin áhætta tekin.
18. Coventry - vara
17. Nottingham Forest - aðal
16. Everton - aðal
15. Tottenham - aðal
14. Ipswich - aðal
13. Manchester City - vara
12. Newcastle - vara
11. Leeds - vara
Topp tíu:

10. Fulham - vara
Djörf rauð og svört skákborðsmynstur ásamt retro útliti.

9. Arsenal - aðal
Halda tryggð við einkennisútlit félagsins og forðast óþarfa brellur. Hönnun sem er strax auðþekkjanleg og klassísk.

8. Manchester United - vara
Konungsblár litur með sterkum rauðum röndum. Treyja sem lítur út eins og hún sé tekin beint úr gullöld ensku úrvalsdeildarinnar.

7. Brentford - vara
Áhugaverð og flott treyja þar sem leitað er í anda Kingsman myndanna.

6. Brentford - aðal

5. Nottingham Forest - vara
Snilldarhönnun sem fer fram úr fótboltatískunni og lítur út eins og lúxuspeysa sem hönnuð var fyrir sérvitran milljarðamæring.

4. Coventry - aðal
Þvílíkur búningur hjá nýliðunum. Nútímalegum grafísk smáatriði sem hitta beint í mark.

3. Liverpool - vara
Glæsilegt og stílhreint meistaraverk. Lítur út eins og úrvals tennispeysa sem hefur staðist tímans tönn áreynslulaust.

2. Arsenal - vara
Djörft hönnunarval sem skapar andstæður sem svínvirka. Á skilið lófatak. Klapp, klapp, klapp.
Flottasta treyjan:

1. Sunderland - aðal
Meistaraverk. Klassískar rendur ásamt sérsniðnum pólókraga ná fram algjörri fullkomnun í fótboltahefðinni. Býður upp á tímalaust og stílhreint útlit sem heiðrar hefðirnar gallalaust. Aðdáendur Sunderland munu án efa kaupa þennan búning í áratugi.

Heimild: Listi valinn af Mirror