20.08.26 - 15:26
Elvar Geir Magnússon
Ánægður með Enzo og hugarfar hans

Enzo Fernandez.

Mynd: EPA

Enzo Fernandez.

Mynd: EPA
Xabi Alonso, stjóri Chelsea, segir að viðhorf Enzo Fernandez hafi verið til hreinnar fyrirmyndar síðan hann mætti til æfinga á undirbúningstímabilinu.
Miklar vangaveltur hafa verið um framtíð miðjumannsins og hann verið sterklega orðaður við risasölu til Manchester City. Chelsea setti 120 milljóna punda verðmiða á hann og gaf frest til síðasta föstudags.
Ekkert tilboð barst og Chelsea sagði við umboðsmenn leikmannsins að hann yrði ekki seldur í þessum glugga. Það er þó ljóst að Enzo Maresca, stjóri City, vill fá leikmanninn,

TENGT EFNI
Er Enzo tvöfalt verðmætari en Rodri?
„Enzo er leikmaður Chelsea," sagði Xabi Alonso, stjóri Chelsea, þegar hann var spurður út í stöðu leikmannsins.
„Við erum ánægðir með hann og hann er að búa sig undir leikinn gegn Fulham á mánudaginn. Hann hefur komið til baka til okkar með gott hugarfar og æft vel."