Fotbolti.net
20.08.26 - 15:35
Kári Snorrason

Ómyrkur í máli um stöðu mála í Garðabæ - „Myndi ekki endursemja við einn einasta leikmann“

„Arfaslakir og andlausir.“

„Arfaslakir og andlausir.“

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stjarnan tilkynnti í morgun um brottrekstur Jóns Þórs Haukssonar. Jón hafði stýrt liðinu í 13 leikjum í deild og Evrópu. Fimm þeirra unnust, fimm töpuðust og jafnteflin urðu þrjú.

Þetta er í annað sinn sem Stjarnan rekur þjálfarann á tímabilinu en Jökull Elísabetarson var látinn taka poka sinn í byrjun júní. Stjarnan situr nú í 8. sæti deildarinnar með 21 stig eftir 19 umferðir.

Fótbolti.net ræddi við Lúðvík Jónasson, stuðningsmann Stjörnunnar, og fékk hans álit á stöðu mála í Garðabæ.
Stormasamt á bak við tjöldin í Garðabæ
TENGT EFNI

Stormasamt á bak við tjöldin í Garðabæ

Ætti að sjá sæng sína uppreidda
„Ég hefði látið Jón klára tímabilið, ég hefði ekki rekið hann,“ segir Lúðvík. Hann var í kjölfarið spurður hvað hann teldi hafa valdið slöku gengi liðsins á tímabilinu.

„Það þarf að hreinsa stjórnarmenn út úr Stjörnuheimilinu. Þó fyrr hefði verið. Ég held að Sæmundur Friðjónsson ætti að sjá sæng sína uppreidda eftir þetta ár og stíga frá borði. Valgeir Sigurðsson og allir í stjórn ættu að fara, fyrir utan Halldór Orra sem hefur verið þarna í eitt ár,“ segir Lúðvík og heldur áfram.

„Rót vandans er Jökull. Hann var búinn að vera óáreittur þarna í þrjú ár. Hefði Steven Caulker ekki kominn inn í fyrra hefði drullan byrjað í fyrra. Caulker reddaði þessu í fyrra, það vita allir sem vita eitthvað um fótbolta. Maður sá öll teikn á lofti strax í fyrra en Caulker bjargaði því sem bjargað var. Leikmenn eru búnir að spila langt undir getu og það er bara illa samsett lið,“ segir Lúðvík.

Myndi ekki endursemja við einn einasta leikmann
Þá segir Lúðvík sökina sömuleiðis liggja hjá leikmönnum liðsins. „Arfaslakir og andlausir. Það er ömurlegt að horfa upp á þetta. Ekkert sjálfstraust og enginn út með kassann. Það er búið að senda alla leikmennina sem eru með smá karakter í burtu,“ segir Lúðvík og á þar við um Samúel Kára Friðjónsson og Alpha Conteh.

„Ég myndi ekki endursemja við einn einasta leikmann sem er á samning. Ég myndi selja Birni Snæ og losna við Sindra Þór, Gumma Kri, Akureyringinn (Þorra Mar), Örvar Eggerts, Daníel Finns, Andra Rúnar og Árna Snæ í markinu. Gustav Kjeldsen, guð minn almáttugur. Emil Atlason eru mestu vonbrigði sumarsins, sjö kílóum of feitur og á atvinnumannalaunum. Ég vissi ekki að Besta deildin væri fitubolludeild. Burt með þetta allt. Það þarf að byggja upp á nýtt núna. Svo eru þessi kaup hjá þessum stjórnarmönnum; Árni Vill og Ari Leifsson, þeir eru hvorugir í nægilega góðu standi til að lyfta leik liðsins á hærra plan,“ segir Lúðvík.

Geta vel fallið
Sérðu fram á að það birti til í Garðabænum eftir brottrekstur Jóns Þórs?

„Það getur ekkert birt til. Þetta tímabil er farið. Nú þarf bara að halda sér uppi. Ef þeir tapa á sunnudaginn gegn Þór geta þeir vel fallið, það gefur auga leið. Ég hafði litla trú á Jóni Þór sem þjálfara en ég held að það hafi ekki verið annar kostur. Ég skrifa það bara á stjórnina. Stjórnin hafði ekki leitað og gert neitt.“

Brynjar Kristmundsson og Olgeir Sigurgeirsson munu stýra liðinu út tímabilið en Lúðvík segir aðeins þrjá þjálfara koma til greina til að taka við liðinu til frambúðar.

„Fyrir mér eru bara þrír þjálfarar sem eiga að taka við í Garðabænum fyrir næsta tímabil. Efsti maður á blaði væri Rúnar Kristinsson og hann fengi Helga Sig með sér. Svo væru það Rúnar Páll (Sigmundsson) eða Heimir Guðjónsson,“ segir Lúðvík að lokum.
Lúðvík Jónasson.

Lúðvík Jónasson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Látinn fara í morgun.

Látinn fara í morgun.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lætur leikmenn heyra það.

Lætur leikmenn heyra það.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Rót vandans er Jökull.“

„Rót vandans er Jökull.“

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Stjarnan mætir Þór á sunnudaginn.

Stjarnan mætir Þór á sunnudaginn.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.19+4448
2KR19+2540
3Fram19+1340
4Breiðablik19+630
5ÍA19-425
6Keflavík19-425
7Valur19-523
8Stjarnan19-1221
9ÍBV19-1117
10FH19-1217
11KA19-1216
12Þór19-2815
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.