Stuðningsmenn KA tjá sig um ráðningu Eiðs - „Forsetabikarinn nýjasti bikarinn í safnið“

Skrifar undir samning út tímabilið.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Unnið einn af síðustu tólf leikjum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Haraldur Bolli eða Halli Bolli eins og hann er oftast kallaður.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

„Nákvæmlega það sem við þurftum til að kveikja aðeins í þessu.“

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sveinn Sigurbjörns liggur ekki á skoðunum sínum.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

„Tökum Forsetabikarinn fjórða árið í röð og Guðjohnsen bætir enn einum titlinum í safnið.“

Mynd: Chelsea

Egill Sigfússon.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Þess á milli getur hann sagt sögur af því þegar hann vann PL og Champa og fær menn eins og DDD og AP vonandi almennilega í gang.“

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Haraldur Örn og Egill á góðum degi.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Skrifar undir samning út tímabilið.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Lítið hefur gengið hjá KA undanfarið en gengi félagsins hefur verið langt undir væntingum. Liðið situr nú í 11. sæti deildarinnar og hefur KA aðeins unnið einn leik af síðustu tólf.
Fótbolti.net tók púlsinn á fjórum stuðningsmönnum KA og spurði þá út í ráðninguna á Eiði og hvort þeir teldu að KA myndi halda sér uppi.

Eiður kemur inn sem aðalþjálfari með Hadda - „Svo er staðan tekin í haust“
Óvænt og ekki óvænt maður sá þetta kannski ekki á bingóspjaldinu sínu þegar maður fór inn í þetta tímabil en þetta er frábær ráðning það kemur manni í raun ekkert lengur á óvart þegar kemur að því að KA sækir leikmenn eða þjálfara það er alltaf úr efstu hillu
Hann kemur auðvitað fyrst og fremst bara með þvílíka áru og presence. Þetta er maður sem hefur unnið með bestu þjálfurum og leikmönnum heims. Held það sé nóg að hann labbi inn í KA heimilið þá fara allir upp á tærnar. Þetta er bara fyrst og fremst risa stórt fyrir klúbbinn
Þetta var nákvæmlega það sem þurfti að fá smá nýtt blóð inn í þetta fyrir lokasprettinn það er klókt að fá hann inn í teymið með Hadda þetta er win win fyrir alla þá er ég að tala um leikmenn, þjálfarateymið og stuðningsmenn. Mennirnir bakvið tjöldin hittu naglann á höfuðið þarna eins og er oft sagt.
KA mun halda sér uppi já heldur betur það er of mikil reynsla sem býr yfir liðinu og of mikil gæði. Á eftir Víkingum getum við stillt upp í besta 11 manna lið deildarinnar þar sem leikmennirnir í KA kunna ekkert annað en að vinna málma og spila stóra leiki í Evrópu. Ég persónulega vildi sjá mitt lið í topp 3 en því miður mun það ekki ganga en það eru þó 24 stig eftir í pottinum, miði er möguleiki. Ef ekki þá tökum við hinn virta Forsetabikar fjórða árið í röð.
Sveinn Sigurbjörnsson
Maður er á bleiku skýi hérna með Guðjohnsen-ráðninguna. Það er ljóst að mönnum er ekki sama og markmiðið er skýrt. Þetta er nákvæmlega það sem við þurftum til að kveikja aðeins í þessu.
Eiður kemur með presence og BDE-orku inn í þetta. Menn ættu alveg að vera tilbúnir að taka aukasprett og tæklingu fyrir Champions League winner. Ofan á það er hann frábær þjálfari og býr yfir ró sem okkur gæti vantað á crucial momentum í næstu leikjum. Þess á milli getur hann sagt sögur af því þegar hann vann PL og Champa og fær menn eins og DDD og AP vonandi almennilega í gang.
Heilt yfir tel ég að KA-fólk hafi verið hissa á fréttunum í gær en jafnframt ánægt. Þetta sýnir að menn ætla ekki að gefast upp svo auðveldlega.
Hvort KA falli er fyndnasta spurning 2026. Eigum við ekki að reyna að vera faglegir? Tökum Forsetabikarinn fjórða árið í röð og Guðjohnsen bætir enn einum titlinum í safnið.
Egill Sigfússon
Ég er mjög ánægður að fá Eið Smára inn í þetta, hver væri það ekki? Ég hef mikla trú á Eiði sem þjálfara, hann sýndi það á fyrra spellinu hjá FH að hann er með þetta enda með gífurlega þekkingu á fótbolta.
Ég og Eiður tókum Uefa B gráðuna saman fyrir mörgum árum og ég man hvað ég var impressed á hvað hann hefur miklar skoðanir á hlutunum og liggur alls ekki á þeim.
Ég held að með þessari innkomu komi mikil fagmennska inn í klefann og það er akkúrat það sem KA vantaði, utanaðkomandi rödd sem þekkir ekki allt og alla.
KA mun halda sér uppi, ég hef fulla trú á því og þetta fyrir mér staðfestir það.
Haraldur Örn Haraldsson
Fyrir mig persónulega er þetta frekar einstakt. Ég ákveð að verða Chelsea maður sem krakki því að uppáhalds leikmaðurinn minn Eiður Smári spilar fyrir liðið og núna öllum þessum árum seinna er hann kominn til íslenska liðsins. Það er bara gullfallegt og ég gæti ekki verið ánægðari með að fá mann með reynslu sem enginn annar íslenskur þjálfari býr yfir inn í klúbbinn.
Eiður ætti að koma með ferska vinda inn í klefa sem skortir allt sjálfstraust. Ég hugsa að hann ætti að geta bent sóknarmönnum liðsins á það hvar markið er staðsett, og hvernig sé best að koma tuðrunni þangað. Hann var nú ágætur í því sjálfur á sínum tíma. Svo lærði maðurinn náttúru undir tveim bestu þjálfurum allra tíma, Mourinho og Guardiola. Þannig hann hefur væntanlega eitthvað frá þeim.
Hvort þetta sé það sem KA þurfti verður auðvitað bara að koma í ljós en þetta er klárlega áhugaverð og sniðug tilraun. Svona frekar en að kaupa annan dýran kantmann. Ef Eiður getur komið með jákvæðni, sjálfstraust og smá proffa galdur inn í þetta þá er þetta eflaust það sem þurfti.
Hvað þýðir þetta síðan til lengri tíma? Það er náttúrulega ekkert gefið upp um hversu langur samningurinn er, maður gerir bara ráð fyrir út tímabilið. Atli Sveinn er hins vegar settur í 2. flokkinn og því er þessi staða allavega laus eitthvað lengra en það. Ég hef velt því fyrir mér hvort það sé verið að máta hann fyrir aðalþjálfara starfið eftir tímabil. En það er líkast til líklegra að þetta sé bara stutt stopp til þess að bjarga liðinu frá falli.
Eftir frammistöðuna gegn Val sem var alls ekki gallalaus en töluvert betra en það sem við höfum séð nýlega, og þessar fréttir. Þá er ég töluvert jákvæðari fyrir því að KA haldi sér uppi. Ég virðist hafa kveikt á Grímsa sem sagði mér að hafa hljótt í þeim leik, það fannst mér geggjað. Já ég ætla bara að tileinka mér það.
Þar sem þetta er nú í texta ætla ég samt að benda á að ég er að grínast. En á endanum verður þetta bara spenna til enda og mér finnst allar líkur á þvi að eitt af þessum fjórum neðstu liðum í dag bjargi sér á loka deginum. Markmið KA í dag verður að vera, að bjarga sér fyrr en það.

Unnið einn af síðustu tólf leikjum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Haraldur Bolli eða Halli Bolli eins og hann er oftast kallaður.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

„Nákvæmlega það sem við þurftum til að kveikja aðeins í þessu.“

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sveinn Sigurbjörns liggur ekki á skoðunum sínum.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

„Tökum Forsetabikarinn fjórða árið í röð og Guðjohnsen bætir enn einum titlinum í safnið.“

Mynd: Chelsea

Egill Sigfússon.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Þess á milli getur hann sagt sögur af því þegar hann vann PL og Champa og fær menn eins og DDD og AP vonandi almennilega í gang.“

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Haraldur Örn og Egill á góðum degi.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

