Fotbolti.net
20.08.26 - 17:37
Brynjar Ingi Erluson

Brighton hafnaði 50 milljóna punda tilboði Liverpool

Brighton hafnaði 50 milljóna punda tilboði Liverpool
Canon

Mynd: EPA

Enska úrvalsdeildarfélagið Brighton hafnaði 50 milljóna punda tilboði Liverpool í Gambíumanninn Yankuba Minteh. Þetta segir David Ornstein í dag.
Liverpool ætlar að bæta tveimur sóknarmönnum við hópinn áður en glugginn lokar og skoðar nú nokkra möguleika.

Minteh er 22 ára gamall hægri vængmaður og hefur lengi verið á ratsjá Liverpool.

Hann er meiddur og verður frá keppni næstu tvo til þrjá mánuði en það hefur ekki dregið úr áhuga Liverpool. Félagið bauð 50 milljónir punda í hann fyrir nokkrum dögum en Brighton hafnaði tilboðinu umsvifalaust.

Minteh kom til Brighton frá Newcastle árið 2024 og hefur skorað tíu mörk í 73 leikjum í öllum keppnum.

Liverpool fylgist einnig með Ibrahim Mbaye hjá Paris Saint-Germain og á jafnframt í viðræðum við Evrópumeistarana um Bradley Barcola.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.