Fotbolti.net
20.10.26 - 19:45
Brynjar Ingi Erluson

Endurkomukóngarnir í Þýskalandi

Endurkomukóngarnir í Þýskalandi
Canon

Mynd: EPA

Werder Bremen heldur áfram að sýna ótrúlega seiglu og um helgina tókst liðinu að skrá sig í sögubækur þýsku úrvalsdeildarinnar eftir enn eina endurkomuna, að þessu sinni gegn Paderborn.
Bremen lenti tveimur mörkum undir í leiknum en tókst að jafna metin með tveimur mörkum frá Niclas Füllkrug á aðeins sex mínútna kafla um miðjan síðari hálfleik.

Þetta var þriðji leikurinn í röð þar sem Bremen vann upp tveggja marka forskot andstæðinganna. Liðið hafði áður lent 2-0 undir gegn Borussia Dortmund en náð að jafna í 2-2 og þar á undan sneri það sömuleiðis tveggja marka forskoti Augsburg í 3-2 sigur.

Þetta er í fyrsta sinn í sögu þýsku úrvalsdeildarinnar sem lið nær að vinna upp tveggja marka forskot í þremur deildarleikjum í röð og ná í stig úr þeim öllum.

Bremen situr í áttunda sæti deildarinnar með níu stig og hefur aðeins tapað einum leik á tímabilinu.


Bundesliga - karlar

#LiðLmunStig
1Bayern6+1714
2Dortmund6+714
3Freiburg6+913
4Leverkusen6+713
5Mainz6+410
6Elversberg6+110
7RB Leipzig6+59
8Werder609
9Hamburger6-99
10Augsburg6+48
11Frankfurt6-68
12Köln6-37
13Stuttgart6-26
14Hoffenheim6-36
15Schalke 046-35
16Paderborn6-45
17Union Berlin6-125
18Gladbach6-120
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.